Sunnlendingurinn Valgerður Einarsdóttir Hjaltested í BF Boganum í Kópavogi náði mati prófdómara á alþjóðlegu þjálfaranámskeiði stigi 1 um helgina eftir viku langt námskeið á vegum Alþjóðabogfimisambandsins (World Archery – WA), Bogfimisambands Íslands (BFSÍ) og Ólympíusamhjálpinni (Olympic Solidarity – OS).
Valgerður þurfti að ná 12 af 20 mögulegum stigum á matsdeginum síðasta degi námskeiðsins 7 ágúst. Endanlega einkunnin var 19 af 20 sem samsvarar 9.5 í einkunn sem er vel af sér vikið. Valgerður er einnig starfsmaður BFSÍ og sá um skipulag þjálfaranámskeiðsins ásamt Íþróttastjóra.
Endanleg staðfesting og skírteini munu berast frá WA á næstu vikum eftir að skýrsluskilum og viðeigandi form hafa verið fyllt út. Alþjóðlegu þjálfararéttindin gilda í fjögur ár og svo er krafa um endurmenntun, líklega í formi uppbótarnámskeiðs, en ólíklegt að þess þurfi hjá þessum þjálfara þar sem áætlað er að hann muni taka þátt á stig 2 námskeiði World Archery sem áætlað er að verði haldið í ágúst 2023.
Þjálfaranámskeið stig 1 heimssambandsins World Archery (WA) var haldið af Bogfimisambandi Íslands í Bogfimisetrinu dagana 2-7 ágúst. Námskeiðið var haldið í samstarfi við ÍSÍ og Ólympíusamhjálpina (Olympic Solidarity (OS)) sem stendur undir meirihluta kostnaði námskeiðsins. Þjálfarakennari World Archery á námskeiðinu var Christos Karmoiris frá Grikklandi. Prófdómarar World Archery á námskeiðinu voru Christos og Guðmundur Örn Guðjónsson Íþróttastjóri BFSÍ sem þriðja stigs WA þjálfaramenntaður.
Frekari fréttir af námskeiðinu er hægt að finna á archery.is