Þórdís best í Búlgaríu

Þórdís Unnur Bjarkadóttir sigraði Bulgarian Open í Sofia Búlgaríu í dag í trissuboga kvenna U18 af miklu öryggi.

Þórdís tók gull úrslita leikinn gegn Cveta Doseta frá Búlgaríu 137-122. Sú Búlgarska tók því silfrið og Anastasia Alexopoulou frá Grikklandi tók bronið.

Bulgarian Open er eitt af tveim mótum sem Íslensku keppendurnir munu keppa á í Búlgaríu. Seinna mótið er Evrópubikarmót ungmenna en það hefst á morgun. Við munum fjalla meira um gengi okkar keppenda eftir að báðum mótunum lýkur. En okkur fannst vert að henda í loftið strax sér frétt um Íslensku gull verðlaunahafana í einstaklingskeppni á Bulgarian Open, þar sem það er vel vert frétta, í stað þess að gera það eftir viku þegar að Evrópubikarmótinu lýkur.

Nánari upplýsingar er hægt að finna í þessari frétt á bogfimi.is

Ísland best í Búlgaríu