
Sölvi Óskarsson vann sinn fyrsta einstaklings Íslandsmeistaratitil í íþróttinni á Íslandsmeistaramótinu í berboga á sunnudaginn síðastliðinn.
Sölvi hefur tvisvar unnið Íslandsmeistaratitil í félagsliðakeppni með liði sínu 2023 og 2024, en þetta er fyrsti einstaklings Íslandsmeistaratitillinn hans. Sölvi vann einnig silfur í félagsliðakeppni með liðsfélögum sínum í BF Boganum í Kópavogi á ÍM um helgina.
Sölva hefur farið mikið fram á síðasta ári í íþróttinni, en fáir hefðu sett hann meðal tveggja líklegustu til þess að taka Íslandsmeistaratitilinn á ÍM í ár. Þannig að þessi niðurstaða var skemmtilega óvænt. En til að endurtaka einfaldann málshátt “Þú getur ekki unnið ef þú tekur ekki þátt”.
Keppni um einstaklings Íslandsmeistaratitil karla:
Sölvi var í 5 sæti í undankeppni ÍM og sat því hjá í 16 manna úrslitum. Í 8 manna úrslitum vann hann naumann sigur 6-4 á Akureyringnum Valgeir Árnason og hélt því áfram í undanúrslit.
Í undanúrslitum mættust Sölvi og Akureyringurinn Izaar Arnar Þorsteinsson sem sló Íslandsmetið í undankeppni ÍM og hefur unnið fleiri Íslandsmeistaratitla karla en nokkur annar keppandi og á lengstu sigurröð Íslandsmeistaratitla karla óháð keppnisgrein (og reyndar líka liðsfélagi Sölva frá EM innandyra í febrúar). Sölvi var 100% underdog í leiknum og byrjaði 4-0 undir eftir fyrstu tvær loturnar, en Sölvi vann þriðju lotuna 4-2 og jafnaði fjórðu lotuna 5-3, í síðustu lotunni þurfti Sölvi að vinna til þess að jafna leikinn og knýja fram bráðabana og hann rétt svo náði því og tók lotuna 26-25. Leikurinn var því jafn 5-5 og þurfti bráðabana til þess að ákvarða hvor væri sigurvegarinn og myndi halda áfram í gull úrslitaleikinn, ein ör, nær miðju vinnur. Bæði Izaar og Sölvu skutu 9 nánast nákvæmlega jafn langt frá miðju skotmarksins, dómarinn mældi muninn og Sölvi var um 2,5 mm nær miðju og sigraði því leikinn og hélt áfram í gull úrslitaleikinn.
Í gull úrslitaleiknum mættust Sölvi og enn annar Akureyringur Helgi Már Hafþórsson (Sölvi er greinilega hrifinn af Akureyringum á Íslandsmótum hehe). Helgi var hærri í skori í undankeppni mótsins og var talinn sigurstranglegri í úrslitaleiknum. En bæði Helgi og Sölvi voru að keppa í fyrsta sinn um Íslandsmeistaratitil þeirra ferli. Sölvi tók fyrstu lotuna 26-23 og staðan 2-0, þeir jöfnuðu aðra lotu 27-27 og staðan 3-1, Sölvi tók þriðju lotu 27-26 og staðan því 5-1. Helgi varð því að vinna síðustu tvær loturnar til að knýja fram bráðabana og Helgi tók fjórðu lotuna 26-21 og staðan því 5-3. Sölvi vann svo síðustu lotu leiksins 26-25 og tryggði sér sigurinn í úrslitaleiknum 7-3 sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil í meistaraflokki á ferlinum og kom nafni sínu inn í sögubækur íþróttarinnar. Izaar Arnar Þorsteinsson tók bronsið í karla 6-2 gegn Baldri liðsfélaga Sölva.
Keppni um einstaklings Íslandsmeistaratitilinn (óháð kyni):
Í keppni um Íslandsmeistaratitilinn (óháð kyni) vann Sölvi leikinn sinn í 16 manna úrslitum örugglega 6-0 gegn Henry Johnston úr BF Boganum Kópavogi. Í 8 manna úrslitum mætti Sölvi honum Baldur Freyr Árnassyni úr BF Boganum Kópavogi (sem vann silfur á EM U21 í febrúar), en þar náði Baldur sigrinum 6-2 og Sölvi endaði því í 6 sæti í keppni óháð kyni á ÍM.
Keppni um Íslandsmeistaratitilinn í félagsliðakeppni:
Í félagsliðakeppni var Sölvi á samt liðfélögum sínum Astrid og Ragnari í BF Boganum í öðru sæti í undankeppni ÍM. Þau kepptu í gull úrslitaleiknum gegn Akureyringum úr ÍF Akri.
Leikurinn var mjög jafn og eftir fyrstu tvær umferðirnar (af fjórum) var staðan jöfn 2-2, Akureyringar unnu svo þriðju lotuna 44-41 og staðan 4-2, liðið sem er fyrr að ná 5 stigum vinnur. Síðasta lotan var mjög jöfn og útlit fyrir að það gæti endaði í jafntefli í leiknum og þyrfti bráðabana til að ákvarða Íslandsmeistara félagsliða, en Boginn og Akur jöfnuðu lotuna 45-45 og staðan í leiknum því 5-3 og Akureyringar tóku titilinn.
Sölvi tók því silfrið með liðsfélögum sínum í jöfnum og spennandi leik. Lið 2 frá ÍF Akur tók bronsið í félagsliðakeppni.
Samantekt af árangri Sölva á ÍM berboga meistaraflokki:
- Íslandsmeistari – Berbogi karla – Sölvi Óskarsson – BFB Kópavogi
- 6 sæti – Berbogi óháð kyni – Sölvi Óskarsson – BFB Kópavogi
- Silfur – Berbogi félagsliðakeppni – BF Boginn Kópavogi
- Sölvi Óskarsson
- Baldur Freyr Árnason
- Ragnar Smári Jónasson
ÍM í berboga og langboga var haldið í Bogfimisetrinu sunnudaginn 13 apríl 2025.
Keppt er um fjóra Íslandsmeistaratitla í hverri íþróttagrein (bogaflokki)
- Einstaklings karla
- Einstaklings kvenna
- Einstaklings (óháð kyni)
- Félagsliða (óháð kyni)
Mögulegt er að finna frekari upplýsingar hér:
- Streymi undankeppni https://www.youtube.com/watch?v=kP_VWnYiXOk
- Streymi gull úrslitaleikir https://www.youtube.com/watch?v=9LYdPXf_IrU
- Niðurstöður https://www.ianseo.net/Details.php?toId=21365
- Myndir https://bogfimi.smugmug.com/
- Frekari upplýsingar er hægt að finna í frétt Bogfimisambands Íslands hér: