Sölvi Óskarsson í 4 sæti á EM aðeins bráðabana frá bronsi

Sölvi Óskarsson úr BFB Kópavogi var að ljúka keppni á Evrópumeistaramótinu innandyra í Varazdin Króatíu þar sem hann endaði í 4 sæti í liðakeppni og 17 sæti einstaklingskeppni.

Sölvi komst áfram í útsláttarleiki liða og einstaklinga eftir undankeppni EM á þriðjudaginn.

Berboga karla liðið, sem Sölvi var partur af, var hársbreidd frá því að tryggja sér brons verðlaunin á EM í brons úrslitaleik sem endaði jafn 4-4 gegn Serbíu. Bráðabana (shoot off) þurfti til þess að brjóta jafnteflið og ákvarða hvort liðið hreppti bronsið, en sá bráðabani var sögulegur. Bæði lið fengu rautt spjald fyrir að skjóta utan tíma og töpuðu hæst skorandi örinni sem gaf Serbíu sigurinn. Íslenska liðið endaði því í 4 sæti á EM, sem er hæsta sæti sem Ísland hefur náð til dags í berboga karla. Brons úrslitaleiknum var streymt í beinni og hægt að sjá hann hér fyrir neðan.

Í berboga einstaklingskeppni á EM var Sölvi sleginn út í 32 manna útsláttarleikjum gegn Zoran Velagic frá heimaþjóðinni Króatíu 6-0 og Sölvi endaði því í 17 sæti í einstaklingskeppni berboga á EM.

34 Íslenskir keppendur og 11 Íslensk lið voru skráð til keppni frá Íslandi í undankeppni Evrópumeistaramótsins sem var á þriðjudagin síðastliðinn. Þetta er stærsti hópur Íslands til dags á EM og því vægast sagt mikið sem er búið að ganga á í vikunni. EM var haldið 19-24 febrúar og Íslensku keppendurnir voru að lenda heima á Íslandi í dag.

Nánari upplýsingar um gengi annarra keppenda Íslands á EM er hægt að finna í fréttum á archery.is og bogfimi.is