Skotíþróttafélag Austurlands (SKAUST) tók Íslandsmeistaratitilinn í sveigboga blandaðri liðakeppni, ásamt því að slá tvö Íslandsmet, vinna eitt silfur og eitt brons á Íslandsmeistaramótinu í bogfimi innandyra 2022.
Haraldur náði ekki að verja Íslandsmeistaratitil sinn innandyra frá árinu 2021 enda var gífurlega jafn leikur í gull úrslitum sveigboga karla á mótinu. Sigur röð Haraldar á Íslandsmeistaratitlum stoppar því í þremur í röð frá árinu 2020 og allir af þeim titlum hefur hann unnið í gífurlega hörðum bardögum sem oftar en ekki hafa endað í bráðabönum eða jafnvel tvöföldum bráðabönum til að ákvarða sigurvegara. Guðný Gréta Eyþórsdóttir vann brons úrslitaleikinn en Daníel Baldursson þurfti að sætta sig við 4 sæti á mótinu, þó vert að geta að frábær árangur fyrir ungann strák í fullorðinsflokki að komast næstum á verðlaunapall.
Íslandsmeistaratitlar Skaust á mótinu
- Sveigbogi blandað lið – Haraldur Gústafsson og Guðný Gréta Eyþórsdóttir skipuðu lið Skaust
Íslandsmet Skaust á mótinu
- Haraldur Gústafsson sveigbogi karla 50+ með 552 stig. Metið átti Haraldur áður frá Evrópumeistaramótinu innandyra 2022 í febrúar síðast liðinn.
- Sveigbogi blandað lið 50+ 1040 stig. Metið átti Skaust áður og var 1021 stig frá Íslandsmóti öldunga innandyra í nóvember 2021.
Hér fyrir neðan er hægt að finna myndskeið af gull og brons úrslitaleikjum Skaust á Íslandsmeistarmótinu.
Sveigbogi karla gull úrslitaleikur
Sveigbogi kvenna brons úrslitaleikur
Trissubogi karla brons úrslitaleikur
Sveigbogi blandað lið gull úrslitaleikur