Sara Sigurðardóttir í 17 sæti á EM U21 einstaklinga og keppir með trisssuboga kvenna U21 liði í 8 liða úrslitum gegn Ítalíu á morgun

Evrópumeistaramót innandyra er núna í gangi í Lasko í Slóveníu. Stór hópur Íslenskra keppenda er að keppa á mótinu og gengið hefur verið ágætt.

Í einstaklingskeppni var Sara í 21 sæti í undankeppni trissuboga kvenna U21 með skorið 552 og endaði því á móti Pil Munk Carlsen frá Danmörku sem var í 12 sæti í undankeppni. Í útsláttarkeppni vann Pil gegn Söru 140-135 og Sara er því dottinn út af EM í einstaklings keppni og endaði í 17 sæti í lokaniðurstöðum. Sara skaut bara níur allan leikinn og margar sem voru við 10 línuna. Á Íslandsmóti ungmenna um tveim vikum fyrir EM skoraði Sara 142. Dagsformið og smá heppni sker úr um sigurvegara þegar að þeir eru komnir á hátt stig í íþróttinni. Samt sem áður frábær frammistaða á fyrsta alþjóðlega stórmóti.

Í trissuboga liðakeppni U21 á fimmtudaginn mun Sara ásamt liðsfélögum sínum keppa á móti Ítalíu í 8 liða úrslitum. Ítalía var í fjórða sæti í undankeppni og Íslensku stelpurnar í fimmta sæti, og um tíma í undankeppni var Ísland yfir Ítalíu. Þannig leikurinn gæti farið á hvorn veginn sem er og verður líklega spennandi.

Sara er úr Bogfimifélaginu Boganum í UMSK í Kópavogi.