Þá er komið að keppni í Reykjavík International Games 2016.
4 erlendir keppendur eru á mótinu að þessu sinni, 3 búa á Íslandi og það kom einnig ein kanadísk kona sem býr í Mónakó.
Mótið gekk mjög vel, í sveigboga karla var þetta líklega með betri framistöðum Íslendinga að meðaltali þar sem 7 keppendur voru yfir 500 stigum af 600 hámark.
Dagur 1 er undankeppni þar sem skotið er 60 örvum á 18 metrum á 40cm skífu (tían er um 40mm á stærð) og heildarskorið raðar mönnum upp í útsláttarkeppnina á degi 2. Sá sem lifir lengst af í útsláttarkeppnina vinnur gullið.
Sveigboginn var fyrri part dags og er lokið núna og úrslitin orðin klár úr undankeppninni.
Skorin eru eftirfarandi.
Sveigbogi Karla.
1. Sigurjón Atli Sigurðsson – 570 Stig
2. Guðmundur Smári Gunnarsson – 559 Stig
3. Guðmundur Örn Guðjónsson – 548 Stig
4. Tómas Gunnarsson – 525 Stig
5. Carlos Gimenez – 523 Stig
6. Haraldur Gústafsson – 522 Stig
7. Jón Gunnarsson – 507 Stig
8. Ragnar Hafsteinsson – 485 Stig
9. Sólver Sólversson -368 Stig
10. Ingólfur Rafn Jónsson – 356 Stig
Sveigbogi Kvenna.
1. Kelea Josephine Alexandra Quinn – 548 Stig
2. Sigríður Sigurðardóttir – 463 Stig
3. Þórun Margrét Sigurðardóttir – 186 Stig