Ragnar Smári bráðabana frá því að keppa til verðlauna í Slóveníu

Ragnar Smári Jónasson úr BFB Kópavogi endaði í 5 sæti trissuboga karla U21 á Veronicas Cup World Ranking Event í Kamnik í Slóveníu í vikunni.

Ragnar stóð sig flott í undankeppni mótsins og endaði í 4 sæti með 671 stig. Ragnar var því talinn ágætlega líklegur til að koma heim með verðlaun fyrir Ísland, enda í topp 4 í undankeppni mótsins.

En svo varð ekki að þessu sinni þar sem að Ragnar var óheppilega sleginn út í 8 manna úrslitum eftir jafntefli 143-143 við Maximilian frá Austurríki, það þurfti bráðabana (Tie Break T.B.) til að ákvarða hvor þeirra myndi halda áfram í undanúrslit og keppa til verðlauna á mótinu. En þar vann sá Austurríski bráðabanann 9 vs 8, og sló því Ragnar út sem endaði í 5 sæti á mótinu.

https://bogfimi.smugmug.com/2026-Veronicas-Cup/i-2KHgCCt/A

Austurríski strákurinn tók á endanum bronsið á móti strák frá Kazaksthan og Suður-Afríka tók gullið á móti Slóvenskum strák.

Engin liðakeppni er fyrir U21 flokka á Veronicas Cup og því tók Ragnar ekki þátt í liðakeppni á mótinu.

Ragnar flýgur af Veronicas Cup beint yfir til Búlgaríu á Evrópubikarmót ungmenna að keppa. Sjáum hvort að hann næli í verðlaun þar fyrir Ísland, þó að 8 manna úrslit aftur væri líka flott 😉