Ragnar Smári nær 700 stigum og hæstu árangurs viðurkenningu heimssambandsins

Ragnar Smári Jónasson 20 ára úr BF Boganum í Kópavogi skoraði 700 stig í undankeppni Evrópubikarmóts meistaraflokks með landsliðinu í Antalya Tyrklandi í dag.

700 er einnig skorið sem þarf að ná til að hreppa æðstu árangurs viðurkenningu heimssambandsins World Archery, fjólubláa markbogfimi pinnann.

Aðeins 118 íþróttamenn í sögu íþróttarinnar eru á skrá að hafa fengið þá viðurkenningu frá heimssambandinu sem er veitt af framkvæmdastjóra World Archery. Almennt eru færri en 10 nýjir íþróttamenn á heimsvísu sem fá þá viðurkenninguna ár hvert.

Ragnar er fyrsti Íslenski íþróttamaðurinn til þess að fá þessa árangursviðurkenningu og ná þessum árangri, sem er því að sjálfsögðu Íslandamet. Hreint út frábær árangur hjá stráknum.

Undankeppni Evrópubikarmótsins lauk í dag, keppendur sem komust áfram eftir undankeppni mótsins keppa á Evrópubikarmótinu 23-26 apríl í útsláttarleikum og úrslitum. Ísland á enn 3 einstaklinga og tvö lið sem eru í leik.

Ragnar, Þórdís Unnur Bjarkadóttir og Eowyn Marie Mamalis eru enn inn í einstaklingskeppninni fyrir Ísland (keppa í 32 manna úrslitum á morgun)

Ísland er einnig með tvö lið sem munu keppa á Evrópubikarmótinu, trissuboga kvenna lið (3kvk) og trissuboga blandað lið (1kk+1kvk).

En við fjöllum nánar um lokaniðurstöður á árangur okkar fólks eftir að mótinu lýkur í ítarlegum fréttagreinum á archery.is og bogfimi.is, að venju.

En þessi árangur þótti það mikill og tímamót í íþróttinni að það þyrfti að fjalla um það í sér frétt 😉