Oliver Ormar í 48 sæti á World Series heimslista af fleiri en 1000 keppendum

Oliver Ormar Ingvarsson sýndi flotta frammistöðu og þátttöku á opnu innandyra heimsmótaröð alþjóða bogfimisambandsins World Archery þar sem hann endaði í 48 sæti á World Series innandyra heimslista sveigboga karla.

World Series Open innandyra mótaröð alþjóða bogfimisambandsins World Archery samanstóð af 26 mótum um allan heim í vetur, frá byrjun nóvember og til lok febrúar.

Nánar er fjallað um World Series mótaröðina í frétt Bogfimisambands Íslands á bogfimi.is

17 Íslendingar í top 16 sætum á World Series Open heimslista 2023