Marín ekki langt frá Evrópuleika lágmörkum á Evrópubikarmótin í Tyrklandi

Marín Aníta Hilmarsdóttir úr BF Boganum í Kópavogi endaði í 73 sæti á Evrópubikarmóti (EB) í meistaraflokki í Antalya í Tyrklandi. (European Grand Prix – EGP).

Marín var í 67 sæti með skorið 589 í undankeppni Evrópubikarmótsins, en lágmarksskorið fyrir Evrópuleikana er 600 stig í sveigboga kvenna. En þetta var fyrsta utandyra mót okkar keppenda og verið að hrista af sér “utandyra ryðið”. Topp 104 halda áfram eftir undankeppni og hún vann því þátttökurétt á Evrópubikarmótið sjálft.

Á Evrópubikarmótinu (útsláttarkeppni) mætti Marín í fyrsta leik (útsláttarleik) Violetta Eloeva frá Rús… hehem hlutlausum íþróttamönnum (Individual Neutral Athletes – AIN). Violetta var í 46 sæti í undankeppni EM og því talin sigurstranglegri í leiknum, en þó vel innan þess að Marín ætti möguleika á því að vinna leikinn þó að hún væri “underdog”.

5 lotur í leik, 2 stig fyrir að vinna lotu, semsagt 10 stig í pottinum. Sá keppandi sem er fyrr að ná 6 stigum vinnur því leikinn, ef það er jafnt 5-5 er bráðabani skotið einni ör, sá sem er nær miðju vinnur og heldur áfram í næsta leik o.s.frv. þar til einn stendur eftir.

Marín náði að raða ólukku örvum í öllum umferðum og skoraði vel undir meðaltali í leiknum, á meðan Violetta sem skoraði langt yfir sínu meðaltali og vann því fyrstu þrjár umferðirnar í röð og leikinn 6-0. Til þess að geta skotið yfir meðaltali þarf maður víst líka að geta skotið undir meðaltali, þess vegna kallast það meðaltal.

Gaman er að geta þess að á seinna Evrópubikarmótinu 2025 endaði Marín í 9 sæti í einstaklingskeppni, þar sem hún skaut einmitt yfir meðaltali. Svona mikil getur sveiflan verið frá 9 sæti í 73 sæti eftir dagsforminu.

Marín í 8 sæti á Evrópubikarmótinu í Amsterdam

Ísland skipaði ekki liði í sveigboga kvenna að þessu sinni og því aðeins einstaklingskeppni sem Valgerður tók þátt í.

Fjallað er nánar um Evrópubikarmótið í þessari frétt frá Bogfimisambandi Íslands

Ragnar framúrskarandi á Evrópubikarmótinu í Antalya Tyrklandi