Marín Aníta Hilmarsdóttir í 1 sæti á landsmóti í Sviss

Stutta fréttin:

Marín er awesome og vann gull í Sviss. Marín er að keppa á öðru móti í Sviss í þessari viku.

Langa fréttin:

Marín Aníta Hilmarsdóttir sýndi glæsilega frammistöðu á Svissnesku landsmóti með alþjóðlegri þátttöku í gær. Marín vann alla leikina sína í útsláttarkeppninni og tók því gull verðlaunin. Keppandi frá Ísreal tók silfur og keppandi frá Slóvakíu tók brons í hennar flokki.

Fjórar af stelpunum sem voru að keppa á mótinu munu einnig keppa á Evrópuleikum (European Games) síðar á þessu ári. Marín mun keppa þar fyrir hönd ÍSÍ.

Íslensku keppendurnir á Evrópubikarmótinu (og Svissneska landsmótinu) Frá vinstri: Standandi Melissa Tanja Pampoulie, Anna María Alfreðsdóttir, Marín Aníta Hilmarsdóttir, Sámuel Peterson, Aríanna Rakel Almarsdóttir, Ragnar Smári Jónasson, Freyja Dís Benediktsdóttir. Liggjandi Eowyn Marie Mamalias og Þórdís Unnur Bjarkadóttir.

Hér eru nokkrir punktar um ferðina og Íslensku keppendurna:

  • Mótið á sunnudaginn 4 júní var Svissneskt landsmót í bogfimi
  • Mótið var haldið degi fyrir Evrópubikarmót ungmenna til að spara vinnu fyrir mótshaldara í Sviss og nýta uppsettann keppnisvöll betur (2 mót fyrir eina uppsetningu)
  • Mótið er gert fyrir Svissnesk íþróttafélög og íþróttafólk en það er ekki lokað fyrir alþjóðlegri þátttöku.
  • Öllum þjóðum sem eru að taka þátt á Evrópubikarmóti ungmenna síðar í vikunni og komu a.m.k. degi fyrr til Sviss var boðin þátttaka á landsmótinu.
  • Ísland, Ísrael, Holland, Slóvakía, Spán og fleiri ákváðu að nota tækifærið og keppa á Svissneska landsmótinu með keppendum frá Sviss (eðlilega).
  • Mótið er flott upphitun fyrir Evrópubikarmót ungmenna sem verður haldið 5-11 júní.
  • Heildar niðurstöður Svissneska landsmótsins er hægt að finna hér
  • Eftirfarandi unnu verðlaun í sínum keppnisgreinum frá Íslandi:
    • Marín Aníta Hilmarsdóttir gull sveigbogi kvenna U21
    • Freyja Dís Benediktsdóttir silfur trissubogi kvenna U21
    • Eowyn Marie Mamalias brons trissubogi kvenna U21
    • Ragnar Smári Jónasson brons trissubogi karla U21
    • Sámuel Peterson silfur trissubogi karla U21
      • Sámuel er Færeyskur en er búsettur á Íslandi. Sámuel er einn af fylgdarmönnunum með Íslenska hópnum á Evrópubikarmótinu. Sámuel notaði tækifærið sem bauðst og keppti fyrir ÍF Akur á Svissneska landsmótinu, þar sem mögulegt er að keppa þar fyrir klúbb. Hann má ekki keppa fyrir Íslenskt landslið enþá. En við teljum það til Íslenskra verðlauna þar sem hann keppti fyrir Íslenskan klúbb á mótinu.
  • Aðrir keppendur frá Íslandi voru:
    • Þórdís Unnur Bjarkadóttir var slegin út í 8 manna úrslitum af öðrum Íslenskum keppanda í U21 og endaði í 5 sæti. (3 af top 5 stelpunum voru frá Íslandi)
    • Aríanna Rakel Almarsdóttir tapaði bronsleiknum í trissuboga U18 kvenna og endaði í 4 sæti.
    • Melissa Tanja Pampoulie var slegin út í 16 manna úrslitum og endaði í 9 sæti.
    • Anna María Alfreðsdóttir slasaði sig stuttu áður en flogið var út á mótið og keppti því ekki.
Mynd af Marín Anítu Hilmarsdóttir úr undankeppni móts.

Veðrið var í raun frábært á mótinu, sól meirihluta tímans og mjög heitt. Það var hinsvegar töluverður vindur sem lét oft á sér kræla á sér yfir daginn og fuku t.d. skotskífur af skotmörkum í keppninni. Ein af stóru sólhlífunum sem skýla dómurum losnaði og fauk af miklu afli í tvo keppendur sem slösuðustu sem betur fer ekki mikið. Einnig féllu reglubundið um koll bogar og kíkjar keppenda í vindkviðum sem gátu verið ansi öflugar.

Yfirlitsmynd af hluta af keppnissvæðinu

Undankeppni Evrópubikarmótins hefst á morgun mánudaginn 6 júní. Við erum vongóð um að það Ísland muni einnig keppa til verðlauna á Evrópubikarmótinu, þó að við vitum ekki hver mun skara fram úr þar fyrr en mótið hefst.

En vel er vert að horfa til trissuboga U21 liðsins okkar sem er mjög sterkt. Trissuboga kvenna U21 liðið hefur þegar unnið til tveggja verðlauna á þessu ári, silfur á síðasta Evrópubikarmóti U21 í Slóveníu og gull á heimslista móti í Slóveníu í fullorðinsflokki. Íslenska trissuboga kvenna liðið er í 8 sæti á Evrópulista (af 50 þjóðum) og 18 sæti á heimslista (af 170 þjóðum). Einnig er vert að fylgjast með Marín Anítu sem vann gullið á mótinu núna í sveigboga kvenna U21, þar sem hún er þegar búinn að vinna margar af þjóðunum á mótinu í dag sem hún mun mæta aftur á Evrópubikarmótinu.

Vonandi gengur jafn vel á Evrópubikarmótinu og gekk á Svissneska landsmótinu í dag og meirihluti keppenda Íslands vinna aftur til verðlauna. Áfram Ísland!!!

Mögulegt er að fylgjast með niðurstöðum Evrópubikarmótsins live hér https://www.ianseo.net/Details.php?toId=14308

Svo munum við að sjálfsögðu skrifa ítarlegar fréttir eftir að mótinu er lokið um gengi okkar keppenda 😊