Marín Aníta Hilmarsdóttir er bikarmeistari BFSÍ 2023 í sveigbogaflokki og á heimslista World Series Open í 3 sæti í U21 og 5 sæti fullorðinna sem stendur

Bikarmótaröð Bogfimisambands Íslands (BFSÍ) 2022-2023 lauk í dag á síðasta bikarmóti BFSÍ á tímabilinu. Marín Aníta Hilmarsdóttir úr BF Boganum í Kópavogi er bikarmeistari BFSÍ í sveigbogaflokki. Ásamt titlinum fá allir bikarmeistarar BFSÍ 50.000.kr í verðlaunafé. Þeim stendur til boða að fá þær greiddar út eða að nota þær upp í kostnað sinn við þátttöku í innlendum mótum eða landsliðsverkefna.

Niðurstöður Bikarmóta BFSÍ eru einnig tengd við World Series Open innandyra mótaröð heimssambandins (World Archery), niðurstöður út bikarmóti BFSÍ í dag eru ekki komnar inn en sem komið er, en staða Bikarmeistara BFSÍ á World Series Open heimslista er algerlega ótrúleg

Marín Aníta Hilmarsdóttir er á World Series Open heimslista í 5 sæti sveigboga kvenna í opnum flokki (fullorðinna) og í 3 sæti U21 sveigboga kvenna. U21 World Series Open heimslista var bætt við á þessu tímabili í fyrsta sinn. Það hefur ekki áður verið neinn heimslisti fyrir U21 í neinni keppnisgrein eða íþróttagrein hjá World Archery.

World Series Open tímabilið hófst 1 nóvember og er ekki en lokið. Því gæti okkar fólk lækkað eitthvað á World Series Open heimslista eftir að öðrum mótum í mótaröðinni á heimsvísu lýkur og listinn er uppfærður í síðasta sinn. Margir sterkir keppendur í heiminum eiga eftir að taka þriðja skor og gætu þá hoppað hærra á lista. Lokaniðurstöður World Series Open U21 ranking munu liggja fyrir 10 janúar, en í fullorðinna munu lokaniðurstöður líklega koma út 5 febrúar. En samt frábær árangur hjá okkar fólk á tímabilinu, vel af sér vikið að vera hátt á heimslista og aðeins örfáir daga eða vikur eftir af mótaröðinni. Það eru því góðar líkur á því að Ísland muni eiga nokkra í top 10 í mismunandi keppnisgreinum 💪

World Series Open innandyra mótaröðin samanstendur af mörgum tugum eða hundruðum móta um allan heim sem mæta kröfum og stöðlum World Archery til þess að vera partur af mótaröðinni. Starfsfólk BFSÍ hefur verið eitt það iðnasta við að skipuleggja slík mót. Stig á World Series Open heimslistanum byggjast á þremur bestu niðurstöðum keppenda úr undankeppni móta sem tengd eru mótaröðinni, hvar sem þau eru haldin í heiminum.

Marín tók einnig við bikar fyrir sveigbogakonu ársins 2022 á bikarmótinu í dag.

Bikarmeistarar BFSÍ árið 2023 eru:

  • Marín Aníta Hilmarsdóttir úr BF Boganum í Kópavogi er bikarmeistari BFSÍ í sveigbogaflokki
  • Alfreð Birgisson úr ÍF Akur á Akureyri er bikarmeistari BFSÍ í trissubogaflokki
  • Guðbjörg Reynisdóttir úr BF Hróa Hetti í Hafnarfirði er bikarmeistari BFSÍ í berbogaflokki

Konur sýndu hörku og sigruðu bardaga kynjana árið 2023 með tvo af þrem bikarmeistaratitlum. En um langt skeið var útlit fyrir að konur myndu taka alla þrjá titlana 2023. Bikarmótaröð BFSÍ er kynlaus (keppni óháð kyni/unisex) og er opin öllum iðkendum innan aðildarfélaga BFSÍ.

Við óskum þeim öllum til hamingju með titilinn og árangurinn.

Svo förum við á EM innandyra í febrúar og tökum þetta, áfram Ísland við viljum verðlaun heim takk 🙏