Maria Kozak í Skotfélagi Ísafjarðar var meðal þeirra 14 sem tilnefnd voru í vali um efnilegasta íþróttamann Ísafjarðar og á Íþróttahátíð Ísafjarðar/HSV fór fram á veitingastaðnum Logni á Hótel Ísafirði þann 13. janúar 2024 hreppti Maria titilinn.
Maria Kozak vann m.a. Íslandsmeistaratitil U18 kvenna innandyra og utandyra ásamt því að vinna Norðurlandameistaratitilinn í U18 flokki árið 2023. Maria er einnig áætluð til keppni á EM innandyra í febrúar, þar sem hún er talin líkleg til verðlauna.
https://hsv.is/frettir/Efnilegasti_ithrottamadur_Isafjardarbaejar_Tilnefningar_2023/
Maria Kozak átti frábært fyrsta keppnis ár í bogfimi 2023, þar sem hún tók 5 Íslandsmeistaratitla, 2 Íslandsmet og 2 verðlaun á alþjóðlegum mótum í U18 berboga flokki.
Maria vann alla fjóra U18 Íslandsmeistaratitla einstaklinga á árinu, kvenna titilinn utandyra og innandyra og titlana óháða kyni innandyra og utandyra. Maria sló einnig Íslandsmet í einstaklingskeppni U18 kvenna utandyra á árinu.
Maria vann einn Íslandsmeistaratitil í félagsliðakeppni fyrir Skotíþróttafélag Ísafjarðar ásamt liðsfélaga sínum Kristjönu Rögn Andersen, þar sem þær slógu einnig félagsliða Íslandsmet U18 á Íslandsmótinu.
Maria vann einnig Norðurlandameistaratitil U18 kvenna í einstaklingskeppni og vann silfur í liðakeppni NM.
Ansi gott start á íþróttaferli, geri aðrir betur á fyrsta ári.
Það er staðfest að Maria mun keppa á Evrópumeistaramóti U21 í Króatíu í febrúar 2024 í berboga kvenna fyrir Bogfimisamband Íslands, þar sem hún er talin vænleg til verðlauna á EM í sínum flokki. Einnig eru taldar miklar líkur á því að hún keppi aftur á Norðurlandameistaramóti ungmenna í U21 flokki í Danmörku í júlí 2024.
Stutt samantekt af árangri Maria á árinu 2023:
- Norðurlandameistari berbogi kvenna U18
- Silfur á NM liðakeppni berboga kvenna U18
- Íslandsmeistari berbogi kvenna U18 innandyra
- Íslandsmeistari berbogi óháð kyni U18 innandyra
- Íslandsmeistari berbogi kvenna U18 utandyra
- Íslandsmeistari berbogi óháð kyni U18 utandyra
- Íslandsmeistari berbogi kvenna U18 félagsliða innandyra
- Íslandsmet berbogi kvenna U18 utandyra 479 stig
- Íslandsmet berbogi kvenna U18 félagsliðakeppni 811 stig