![Trissuboga kvenna landsliðið í 10 sæti á Evrópulista](https://i0.wp.com/archery.is/prufa/wp-content/uploads/2023/01/Trissuboga-kvenna-landslidid-i-10-saeti-a-Evropulista.png?resize=678%2C381&ssl=1)
Á Evrópulista er Íslenska trissuboga kvenna landslið BFSÍ nú meðal 10 efstu Evrópuþjóða!
Þetta er í fyrsta sinn sem Íslenskt bogfimi landslið kemst í 10 efstu sæti á Evrópulista (heimsálfulista). Heims- og Evrópulistar sem alþjóðabogfimisambandsins World Archery heldur utan um voru uppfærðir í dag. Þetta kom bæði á óvart og samt ekki, þar sem liðið var í 11 sæti um áramót, en ekki gert ráð fyrir því að staðan myndi breytast fyrr en síðar á þessu ári þegar að alþjóðlegu mótin færu á fullt aftur. Greinlega hafa verið eldri mót inni í kerfinu sem hafa fallið úr gildi sökum aldurs. Afrekslistarnir eru enþá að jafna sig eftir kórónuveirufaraldurinn þar sem gildistími ákveðinna móta á heimslista var framlengdur vegna aflýsingu eða frestun móta.
Stig á heims- og Evrópulista gilda aðeins í 2 ár og aðeins fást stig fyrir að komast í úrslit (top 16) alþjóðlegra stórmóta. Meirihluti stiga Íslenska liðsins er úr 16 liða úrslitum á EM utandyra (9 sæti) og Veronicas Cup WRE þar sem Ísland vann gullið.
![](https://i0.wp.com/archery.is/prufa/wp-content/uploads/2022/10/Trissuboga-kvenna-lidid.jpg?resize=856%2C1024&ssl=1)
![](https://i0.wp.com/archery.is/prufa/wp-content/uploads/2022/06/20220606_091333.jpg?resize=1024%2C768&ssl=1)
Trissuboga kvenna landsliðið er sem stendur í 25 sæti á heimslista alþjóðabogfimisambandsins World Archery
Myndir: https://bogfimi.smugmug.com/