ÍF Akur sýndi bestu frammistöðu til dags á Íslandsmeistaramóti og tók þrjá einstaklings Íslandsmeistaratitla og 2 liða Íslandsmeistaratitla, ásamt því að slá tvö Íslandsmet. Feðginin Alfreð Birgisson og Anna María Alfreðsdóttir stóðu þar upp úr og tóku þrjá af fimm titlum fyrir Akur á mótinu en þau voru bæði að vinna sinn fyrsta einstaklings Íslandsmeistaratitil innandyra á ferlinum. Izaar Arnar Þorsteinsson hélt áfram sigurgöngu sinni á berboga karla með sjötta Íslandsmeistaratitilinn í röð. Akur vann einnig eitt silfur og eitt brons í einstaklings keppni og eitt silfur í liðakeppni á mótinu til viðbótar við fimm Íslandsmeistaratitlana.
Íslandsmeistaratitlar Akurs á mótinu
- Trissubogi karla einstaklinga – Alfreð Birgisson.
- Trissubogi kvenna einstaklinga – Anna María Alfreðsdóttir.
- Berbogi karla einstaklinga – Izaar Arnar Þorsteinsson.
- Trissubogi blandað lið – Anna María Alfreðsdóttir og Alfreð Birgisson skipuðu lið Akurs.
- Berbogi kvenna lið – Lena Sóley Þorvaldsdóttir, Rakel Arnþórsdóttir og Viktoría Fönn Guðmundsdóttir skipuðu lið Akurs.
Íslendsmet Akurs á mótinu
- Anna María Alfreðsdóttir Íslandsmet í útsláttarkeppni trissuboga kvenna U21 með 145 stig. En metið var 143 stig og átti Anna það sjálf frá því á Evrópumeistaramótinu innandyra í febrúar þar sem hún endaði í 4 sæti á EM í U21 flokki.
- Undankeppni berboga kvenna liða með 769 stig
Einnig er vert að nefna að Lena Sóley Þorvaldsdóttir vann gullið í langboga kvenna. En langbogi er ekki formleg keppnisgrein á Íslandsmeistaramótum að svo stöddu og því ekki gefnir formlegir Íslandsmeistaratitlar eða skráð Íslandsmet fyrir langbogaflokk. Verið er að bæta við langbogaflokki á Íslandsmeistaramótum til þess að greina áhuga á keppnisgreininni og hvort að eigi að brjóta þá keppnisgrein frá berbogaflokki á Íslandsmeistaramótum í sér keppnisgrein. Langbogi er ekki skilgreindur í regluverki World Archery um markbogfimi og því mun það þurfa smá aðlaganir á regluverki til þess að koma þeim bogaflokki fyrir á Íslandsmeistaramótum formlega, en BFSÍ mun skoða að gera það ef nægur áhugi er á næstu árum á langboga sem sér keppnisgrein.
Hér fyrir neðan er hægt að finna myndskeið af úrslita leikum Akurs á Íslandsmeistaramótinu.
Trissubogi karla gull úrslitaleikur
Trissubogi kvenna gull úrslitaleikur
Berbogi karla gull úrslitaleikur
Trissubogi blandað lið gull úrslitaleikur
Berbogi kvenna lið gull úrslitaleikur
http://https://www.youtube.com/watch?v=Ytiv1POcPAM
Berbogi blandað lið gull úrslitaleikur
http://https://www.youtube.com/watch?v=Tmk3JqTqWuw
Berbogi kvenna gull úrslitaleikur
http://https://www.youtube.com/watch?v=7l72PXa3QT4
Berbogi kvenna brons úrslitaleikur
http://https://www.youtube.com/watch?v=g5TxxLeR7oU
Íslandsmeistaramótið var haldið í Bogfimisetrinu í Dugguvogi 2 Reykjavík helgina 5-6 mars. 44 keppendur tóku þátt á mótinu og keppt var á laugardeginum í berboga- og trissubogaflokkum og á sunnudeginum í sveigboga- og langbogaflokkum.
- Mögulegt er að finna heildarúrslit mótsins í úrslitakerfinu I@nseo á ianseo.net og í mótakerfi BFSÍ
- Livestream og önnur myndskeið er hægt að finna á Archery TV Iceland Youtube rásinni https://www.youtube.com/c/ArcheryTVIceland
- Fréttir af mótinu og almennt um bogfimi er hægt að finna á archery.is