Haraldur Gústafsson úr Skaust Egilstöðum var að ljúka keppni á Evrópumeistaramótinu innandyra í Varazdin Króatíu þar sem hann endaði í 7 sæti í liðakeppni og 17 sæti einstaklingskeppni.
Sveigboga karla liðið, sem Haraldur var partur af, var slegið út af EM í 8 liða úrslitum í leik sem endaði 6-0 gegn Ólympíumeisturum Ítalíu. Íslenska liðið endaði því í 7 sæti á EM, sem er hæsta sæti sem Ísland hefur náð til dags í sveigboga karla.
Í einstaklingskeppni var Haraldur sleginn út í 32 manna leikjum 6-0 af Alessandro Paoli frá Ítalíu og Haraldur endaði því í 17 sæti í einstaklingskeppni,
34 Íslenskir keppendur og 11 Íslensk lið voru skráð til keppni frá Íslandi í undankeppni Evrópumeistaramótsins sem var á þriðjudagin síðastliðinn. Þetta er stærsti hópur Íslands til dags á EM og því vægast sagt mikið sem er búið að ganga á í vikunni. EM var haldið 19-24 febrúar og Íslensku keppendurnir voru að lenda heima á Íslandi í dag.
Nánari upplýsingar um gengi annarra keppenda Íslands á EM er hægt að finna í fréttum á archery.is og bogfimi.is