Á morgun 1. maí verður Hamranesvöllur opnaður formlega. Af þessu tilefni verður völlurinn opinn öllum án endurgjalds á opnunardaginn 1. maí. Fyrir þá sem ekki þekkja þennan bogfimivöll þá er Hamranesvöllur utandyra bogfimivöllur bogfimifélagsins Hróa Hattar í Hafnarfirði.
Helgi Kristinn og Sveinn máluðu útlínur vallarins í gær og fyrr í dag voru 10 skotmörkin settu upp á vellinum. Vonir standa til þess að fleiri skortmörk verði sett upp á vellinum í sumar því að Hrói Höttur er er búinn að kaupa bogfimibúnað af Gunnari Þór á Stóra Núpi. Þannig að búnaður vallarins hefur aldrei verið betur búinn en hann verður í sumar.
Þeir sem hafa áhuga að nota völlinn áfram í sumar frá 1. maí til 1. október ( 5 mánuði) geta haft samband við Svein hjá Hróa Hetti í síma 896-5131 og forvitnast um greiðslu vallargjalda.
Allar bogfimiskyttur eru velkomnar, sama hvað bogfimifélagi þær eru í.
Þess má geta að flest utanhúss bogfimimót ársins munu fara fram á Hamranesvelli.
Endilega að vera með frá byrjun og gera bogfimi sýnilega á flottum stað og á flottum velli.