Guðbjörg Reynisdóttir í 4 sæti á EM

Guðbjörg Reynisdóttir úr BFHH Hafnarfirði var að ljúka keppni á Evrópumeistaramótinu innandyra í Varazdin Króatíu þar sem hún endaði í 4 sæti í liðakeppni og 6 sæti einstaklingskeppni.

Guðbjörg komst áfram í útsláttarleiki liða og einstaklinga eftir undankeppni EM á þriðjudaginn.

Berboga kvenna liðið, sem Guðbjörg var einnig partur af, komst í brons úrslitaleik EM þar sem þær mættu liði Serbíu. En þar byrjuðu stelpurnar illa og náðu sér ekki á strik nægilega snemma og töpuðu leiknum 5-1. Íslenska liðið endaði því í 4 sæti á EM, sem er hæsta sæti sem Ísland hefur náð til dags í berboga kvenna. Brons úrslitaleiknum var streymt í beinni og hægt að sjá hann hér fyrir neðan.

Í berboga einstaklingskeppni á EM var Guðbjörg sleginn út í 8 manna úrslitum í leik gegn Kristina Maria Pruccoli frá San Marínó 7-1 og Guðbjörg endaði því í 6 sæti í einstaklingskeppni berboga á EM.

Guðbjörg var ekki að skjóta illa í 8 manna úrslita leiknum og munaði littlu í stigum í hverri lotu leiksins. Örvarnar röðuðust bara ekki Guðbjörgu í hag þennan daginn. Áhugavert er að geta þess að Guðbjörg endaði í 5 sæti á síðasta EM og þar munaði einnig littlu að hún myndi keppa í gull/brons úrslitum mótsins af nákvæmlega sömu ástæðu, örvarnar röðuðust ekki henni í hag í útslættinum. Því mætti í raun segja að ef þetta heldur áfram á EM framtíðar að það sé ekki spurning um hvort Guðbjörg vinnur til verðlauna á EM heldur hvenær hennar dagur mun koma.

34 Íslenskir keppendur og 11 Íslensk lið voru skráð til keppni frá Íslandi í undankeppni Evrópumeistaramótsins sem var á þriðjudagin síðastliðinn. Þetta er stærsti hópur Íslands til dags á EM og því vægast sagt mikið sem er búið að ganga á í vikunni. EM var haldið 19-24 febrúar og Íslensku keppendurnir voru að lenda heima á Íslandi í dag.

Nánari upplýsingar um gengi annarra keppenda Íslands á EM er hægt að finna í fréttum á archery.is og bogfimi.is