Guðbjörg Reynisdóttir í Bogfimifélaginu Hróa Hetti hefur unnið alla Íslandsmeistaratitla í berboga kvenna bæði innandyra og utandyra frá árinu 2018. Það er ekkert útlit fyrir að hún ætli að sleppa titlinum þar sem hún tók í dag Íslandsmeistaratitilinn innandyra aftur með 6-0 sigri í gull úrslitum gegn Birnu Magnúsdóttur í Bogfimifélaginu Boganum.
Guðbjörg vann einnig Íslandsmeistaratitilinn í berboga blandaðri liðakeppni (mixed team eða parakeppni) ásamt Auðunn Andra Jóhannessyni.
Íslandsmeistaramótið er haldið 26-27 nóvember 2021 í Bogfimisetrinu Dugguvogi 2, Reykjavík. Keppt var í trissuboga og berboga flokkum í dag og á sunnudaginn mun keppendur í sveigboga keppast um sína titla.
Á Íslandsmeistaramótum er keppt í þrem bogaflokkum, trissuboga, berboga og sveigboga. Flestir keppendur keppa aðeins í einum bogaflokki og hægt að hugsa um muninn á milli þeirra svipað og handbolta, körfubolta og blak. Þetta eru allt boltaíþróttir þar sem hendur eru notaðar en flestir stunda aðeins eina af þeim. Einnig halda tvö efstu lið í kvenna og karla áfram í gull úrslit og einnig tvö efstu blönduð lið keppa einnig í gull úrslitum (mixed team).
Hægt er að finna heildarúrslit, dagskrá og tengt mótinu í skorskráningarkerfinu ianseo hér á ianseo.net
Sýnt var beint frá úrslitum dagsins í dag á Archery TV Iceland youtube rásinni hér https://www.youtube.com/watch?v=tK-6bqokdM4 og einnig verður sýnt beint frá mótinu á morgun í sveigboga á sömu youtube rás.