![DSC01425](https://i0.wp.com/archery.is/prufa/wp-content/uploads/2023/03/DSC01425-scaled.jpg?resize=678%2C381&ssl=1)
Freyja Dís Benediktsdóttir sýndi glæsilega frammistöðu á innandyra tímabilinu í opnu heimsmótaröð alþjóða bogfimisambandsins World Archery. Freyja endaði í 7 sæti í trissuboga kvenna U21 á World Series Open heimslista af rúmlega 50 keppendum alþjóðlega eftir að öllum mótum í mótaröðinni var lokið. Stig úr mótaröðinni giltu einnig til ranking í fullorðins flokki og þar endaði Freyja í 62 sæti af 776 keppendum.
World Series Open innandyra mótaröð alþjóða bogfimisambandsins World Archery samanstóð af 26 mótum um allan heim í vetur, frá byrjun nóvember og til lok febrúar.
Nánar er fjallað um World Series mótaröðina í frétt Bogfimisambands Íslands á bogfimi.is
17 Íslendingar í top 16 sætum á World Series Open heimslista 2023