Freyja Dís Benediktsdóttir með silfurverðlaun á Evrópubikarmóti ungmenna og tók næstum brons líka

Freyja Dís Benediktsdóttir átti aldeilis glæsilega frammistöðu á Evrópubikarmóti ungmenna í Catez í Slóveníu sem lauk um helgina. Freyja endaði í 2 sæti í liðakeppni, í 4 sæti í einstaklings keppni og 6 sæti í mixed team í U21 flokki á mótinu.

Ásamt því sló Freyja tvö landsliðsmet á mótinu ásamt liðsfélaga sínum Ragnari Smára Jónassyni í undankeppni og útsláttarkeppni U21 blandaðri liðakeppni (mixed team 1kk+1kvk).

Í einstaklingskeppni stóð Freyja sig heldur betur frábærlega. Hún vann öruggann sigur í 16 manna úrslitum gegn Króatískum keppanda 139-133 og sló svo sigurstranglegustu stelpu mótsins frá Ísrael út í 8 manna úrslitum 141-140 í gífurlega jöfnum leik. Það var því ljóst að Freyja myndi keppa um verðlaun á mótinu. Í 4 manna úrslitum mætti hún Aurora frá Hollandi en þar hafði sú Hollenska betur 141-135 og Freyja fór því í brons úrslitaleikinn.

Í brons úrslitaleiknum mætti Freyja keppanda frá Króatíu Lara Drobnjak (sem hefur m.a. unnið til silfurverðlauna í liðakeppni á EM fullorðinna). Freyja skaut vel í leiknum og endaði með 138 stig nokkuð á pari við skor keppendana í gull úrslitaleiknum. Það var þó ekki nóg til að taka bronsið að þessu sinni þar sem sú Króatíska átti frábærann leik og skoraði 142 stig. Leikurinn endaði því 142-138 og Freyja endaði því í 4 sæti í einstaklingskeppni U21 á Evrópubikarmótinu.

Mögulegt er að sjá brons úrslitaleikinn hennar Freyju í heild sinni hér:

Verðlaun í liðakeppni á Evrópubikarmótinu voru afhent byggt á niðurstöðum úr undankeppni (semsagt engin formleg útsláttarkeppni). Þar var Íslenska liðið í 2 sæti og hreppti því Freyja ásamt liðsfélögum sínum Önnu Maríu Alfreðsdóttir og Þórdísi Unni Bjarkadóttir silfurverðlaunin á mótinu.

Mynd úr óformlegri útsláttarkeppni á mótinu, þar sem Ísland sló Ítalíu út en þar endaði Ísland einnig í 2 sæti

Í blandaðri liðakeppni (mixed team 1kk+1kvk) þá keppti Freyja ásamt liðsfélaga sínum Ragnari Smára Jónassyni á móti Króatíu í 8 liða úrslitum. Ragnar og Freyja stóðu sig vel í leiknum sem var mjög jafn en hann endaði með sigri Króatíu 151-147. Til að gefa samanburð þá skoraði Þýska liðið 145 stig og það er aðeins fjölmennari þjóð með smá meiri reynslu í íþróttinni en Ísland. Því er þetta flott frammistaða hjá Ragnari og Freyju í leiknum og sýnir að Ísland sé að keppa á háu stigi þó að þessi leikur hafi endaði í tapi í þetta sinn.

Freyja verður áfram út í Slóveníu eftir Evrópubikarmótið til þess að keppa á Veronicas Cup World Ranking Event (fullorðins mót) þar sem hún vann gull í liðakeppni og var í 9 sæti einstaklinga árið 2022.

Þetta er sjötta erlenda landsliðsverkefni sem Freyja tekur þátt í og startið á þessu ári er aldeilis frábært.

2022 keppti Freyja á Norðurlandameistaramóti ungmenna þar sem hún vann Norðurlandameistaratitilinn í U18 einstaklinga og silfur í liðakeppni. Hún var í 5 sæti á EM U21 utandyra og 5 sæti á EM U21 innandyra og eins og nefnt var fyrr í greininni vann hún gull í liðakeppni á Veronicas Cup 2022.

Freyja er áætluð til keppni á þessu ári á Nordic Youth Championships í júlí, European Youth Cup leg 2 í júní og að sjálfsögðu á Veronicas Cup sem hefst á fimmtudaginn næstkomandi.

Evrópubikarmót ungmenna (EBU) var haldið í Catez í Slóveníu 1-6 maí. Sex keppendur voru að keppa fyrir Íslands hönd á mótinu í trissuboga.

Ýmsar staðreyndir um mótið:

  • 228 keppendur frá 24 Evrópuþjóðum voru að keppa á mótinu samtals ásamt 50 fylgdarfólki.
  • Keppt er í U18 og U21 flokki í trissuboga og sveigboga
  • Af 24 þjóðum unnu 13 þjóðir til verðlauna á mótinu.
  • Ísland vann ein verðlaun á mótinu í trissuboga kvenna liðakeppni U21 og endaði í 11 sæti m.v. heildar medal standings úr öllum keppnisgreinum.
  • Allir Íslensku keppendurnir komust í 16 liða og/eða einstaklings úrslit á mótinu.
  • Ísland átti flesta keppendur allra landa í trissuboga U21 kvenna 8 manna úrslitum (þrjár frá Íslandi, tvær frá Ítalíu og ein frá Lúxemborg/Króatíu/Hollandi)
  • Ísland var með 3 lið á mótinu:
    • Trissuboga U21 kvenna lið (3 kvk) : Silfur
    • Trissuboga U21 mixed team (1 kk + 1 kvk) : 6 sæti
    • Trissuboga U18 mixed team (1 kk + 1 kvk) : 5 sæti
  • Þetta er í annað sinn sem Ísland tekur þátt á EBU og er m.a. í fyrsta sinn á sem:
    • Ísland vinnur til liðaverðlauna
    • Ísland keppir um einstaklings verðlaun
    • Karl keppir fyrir Ísland á EBU
    • (það er mjög mikið af fyrsta árangri þar sem þetta er aðeins annað mótið sem Ísland tekur þátt)
  •  Íslandsmet sem slegin á mótinu:
    • Landsliðsmet U21 mixed team útsláttarkeppni 147 (var 137)
    • Landsliðsmet U21 mixed team undankeppni 1284 (var 1252)
    • Trissuboga U21 kvenna útsláttarkeppni var jafnað (Þórdís 137-137)
  • Myndir af mótinu er hægt að finna á smugmug BFSÍ

Næst á dagskrá hjá Íslenskum keppendum er Veronicas Cup World Ranking Event í Kamnik í Slóveníu sem hefst 11 maí. Seinna Evrópubikarmót ungmenna verður svo haldið 3-11 júní.