Freyja Dís Benediktsdóttir endaði í 5 sæti á Evrópubikarmótinu í Bretlandi í síðustu viku.
- 5 sæti í liðakeppni (3kvk)
- 9 sæti í blandaðri liðakeppni (mixed team 1kk og 1kvk)
- 17 sæti í einstaklings undankeppni Evrópuleikana
- 33 sæti í einstaklingskeppni
Eftir undankeppni mótsins keppti Freyja ásamt trissuboga kvenna liðinu (3 kvk) gegn Þýskalandi í 8 liða úrslitum. Stelpurnar okkar leiddu leikinn með 4 stiga forskot 107-103 eftir að tveim af fjórum umferðum var lokið. En þær Þýsku sóttu á í þriðju umferðinni og jöfnuðu leikinn og áttu svo betri síðustu umferð. Þær Þýsku sigruðu leikinn því 211-207. Freyja endaði því í 5 sæti ásamt liðsfélögum sínum Eowyn Marie Mamalias og Önnu Maríu Alfreðsdóttir.
Freyja keppti einnig í trissuboga blandaða liði Íslands. Þar endaði Ísland á móti Þýsklandi í 16 liða úrslitum. Þýskaland tók þann leik 151-145 og sló Íslenska liðið út af mótinu. Íslenska liðið (Alfreð og Freyja) enduðu því í 9 sæti í þeim hluta keppninnar.
Freyja keppti tvisvar í einstaklingskeppni á mótinu einu sinni á Evrópubikarmótinu og einu sinni sem hluta í European Games Qualification Tournament, sem er sér mót en haldið til hliðar við Evrópubikarmótið. Þar var keppt um síðustu þátttökurétti á Evrópuleikana 2023 sem átti eftir að úthluta. Báðir leikirnir voru gífurlega jafnir.
Á Evrópubikarmótinu keppti Freyja gegn Chloe A’Bear frá Bretlandi. Freyja byrjaði 4 stigum undir eftir aðra umferð í leiknum en náði að vinna sig upp í að vera 2 stigum undir í fjórðu umferð. Í síðustu umferðinni var munurinn á milli þeirra ein ör á línu um hvort að þær væru jafnar og leikurinn færi í bráðabana, dómarinn dæmdi lægra skorið og heimakonan tók því leikinn 136-135 og Freyja var því sleginn út og endaði í 33 sæti Evrópubikarmótsins.
Á undankeppnismóti um þátttökurétt á Evrópuleikana 2023 keppti Freyja gegn Amanda Mlinaric frá Króatíu. Leikurinn var mjög jafn, Freyja byrjaði 2 stigum undir í fyrstu umferð en jafnaði svo í annarri umferð. Freyja náði svo 2 stig forskoti í þriðju umferð og Freyja hélt því forskoti í fjóru umferð. Í síðustu umferðinni átti Amanda frábæra umferð og náði að snúa 2 stiga forskoti Freyju í 1 stigs sigur 137-136. Freyja var því sleginn út og endaði í 17 sæti í undankeppni Evrópuleikana og náði því ekki að vinna þátttökurétt fyrir Ísland að þessu sinni.
Evrópubikarmótið var haldið í Lilleshall Sports Centre í Bretlandi 2-8 apríl. Svæðið er eitt af þremur National Training Centers í Bretlandi og er heimasvæði Breska bogfimisambandsins og landsliða þeirra. Veðrið var mjög breytilegt á milli daga eins og sést á mörgum myndunum. Sumir dagarnir voru fínir Íslenskir sumar dagar, aðrir voru við frostmark, kaldir, rigning, vindur og allt þar á milli (svona klassískt Íslenskt sumar, breytist eftir 5 mínútur)
Mögulegt er að finna frekari upplýsingar um mótið hér:
- Niðurstöðum mótsins á ianseo.net
- Smugmug myndasíðu BFSÍ
- Fréttum á archery.is og bogfimi.is