Ewa Ploszaj með brons á EM

Ewa Ploszaj úr BFB Kópavogi var að ljúka keppni á Evrópumeistaramótinu innandyra í Varazdin Króatíu þar sem hún endaði í 3 sæti í liðakeppni og 9 sæti einstaklingskeppni.

Ewa komst áfram í útsláttarleiki liða og einstaklinga eftir undankeppni EM á þriðjudaginn.

Trissuboga kvenna liðið, sem Ewa var partur af, töpuðu undanúrslitaleiknum við Bretland 234-213 sem setti okkar stelpur í 3 sæti á EM. Bretarnir tóku svo gullið gegn Ítalíu.

Í einstaklingskeppni trissuboga á EM var Ewa slegin út í 16 manna úrslitum af Andrea Nicole Moccia frá Ítalíu og  Ewa endaði því í 9 sæti í einstaklingskeppni trissuboga á EM.

34 Íslenskir keppendur og 11 Íslensk lið voru skráð til keppni frá Íslandi í undankeppni Evrópumeistaramótsins sem var á þriðjudagin síðastliðinn. Þetta er stærsti hópur Íslands til dags á EM og því vægast sagt mikið sem er búið að ganga á í vikunni. EM var haldið 19-24 febrúar og Íslensku keppendurnir voru að lenda heima á Íslandi í gær.

Nánari upplýsingar um gengi annarra keppenda Íslands á EM er hægt að finna í fréttum á archery.is og bogfimi.is