Daníel og Sigfús í bráðabana um brons á Íslandsmóti U16 í dag.

Stundum munar bara millimeter á hvort að keppandi fær verðlaun eða ekki. Það gerðist á Íslandsmóti ungmenna þar sem Daníel Baldursson í SKAUST og Sigfús Björgvin Hilmarsson í BF Boganum voru jafnir í brons keppninni í trissuboga U16 karla og þurfti því að ákveða sigurvegar með bráðabana.

Í bráðabana er skotið 1 ör og sá keppandi sem er nær miðju vinnur. Þeir hittu báðir í tíu og varla sjáanlegur munur á milli hvar örvarnar lentu. En við mælingu frá miðju var Daníel 1 mm nær miðju og fór því heim með brons.

Hægt er að finna úrslit af mótinu á ianseo.net og sjá livestream af gull keppnum og öðru á archery tv iceland rásinni á youtube.

Á sunnudaginn verður Íslandsmót U21 og 50+ haldið og hægt að fylgjast með því á ianseo.net og archery tv iceland rásinni á youtube.

2 Trackbacks / Pingbacks

  1. Kaewmungkorn og Aron í hörku baráttu um gull í trissuboga karla á Íslandsmóti U16 í dag - Archery.is
  2. Daníel Baldursson sigrar í gull úrslita leik á Íslandsmóti Ungmenna utandyra - Archery.is

Leave a Reply

Your email address will not be published.


*


Ert þú manneskja? * Time limit is exhausted. Please reload CAPTCHA.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.