Dagur Örn Fannarsson í 6 sæti á EM

Dagur Örn Fannarsson úr BFB Kópavogi var að ljúka keppni á Evrópumeistaramótinu innandyra í Varazdin Króatíu þar sem hann endaði í 6 sæti í liðakeppni og 17 sæti einstaklingskeppni.

Dagur komst áfram í útsláttarleiki liða og einstaklinga eftir undankeppni EM á þriðjudaginn.

Trissuboga karla liðið, sem Magnús var partur af, voru slegnir út af heimaþjóðinni Króatíu í 8 liða úrslitum 233-213. Íslenska liðið endaði því í 6 sæti á EM, sem er hæsta sæti sem Ísland hefur náð til dags í trissuboga karla. En hæsta áður var 8 sæti 2022. Danirnir tóku gullið í liðakeppni gegn Króatíu.

Í einstaklingskeppni trissuboga á EM var Dagur sleginn út í 32 manna leikjum gegn Marco Bruno frá Ítalíu og Dagur endaði því í 17 sæti í einstaklingskeppni trissuboga á EM.

34 Íslenskir keppendur og 11 Íslensk lið voru skráð til keppni frá Íslandi í undankeppni Evrópumeistaramótsins sem var á þriðjudagin síðastliðinn. Þetta er stærsti hópur Íslands til dags á EM og því vægast sagt mikið sem er búið að ganga á í vikunni. EM var haldið 19-24 febrúar og Íslensku keppendurnir voru að lenda heima á Íslandi í gær.

Nánari upplýsingar um gengi annarra keppenda Íslands á EM er hægt að finna í fréttum á archery.is og bogfimi.is