Dagur Logi Björgvinsson Rist úr BF Boganum þrefaldur Íslandsmeistari í sveigboga U16 og sló tvö Íslandsmet

Dagur Logi Björgvinsson í Bogfimifélaginu Boganum í Kópavogi var þrefaldur Íslandsmeistari sveigboga U16 um helgina á íslandsmótinu Ungmenna. Dagur mætti liðsfélaga sínum Sindra Pálsyni í gull úrslitum einstaklinga, sem endaði 6-0 fyrir Degi.

Dagur og Sindri voru Íslandsmeistarar í liðakeppni sveigboga karla U16 með hæsta skor í undankeppni liða og slóu þeir Íslandsmetið. Dagur vann einnig parakeppnina með liðsfélaga sínum Önnu Guðrúnu Yu Þórbergsdóttur og slóu þau líka nýtt Íslandsmet. Ekki eru útsláttarkeppni í liða- eða parakeppni U16/U18 og því titlarnir afhentir þeim sem skora hæstu stig í undankeppni mótsins.

Gæti verið mynd af 2 manns og people standing

Íslandsmót ungmenna innanhúss er haldið í tveim hlutum. Íslandsmót U16/U18 var haldið á laugardaginn 29. janúar og Íslandsmót U21 var haldið á sunnudaginn 30. janúar. Bæði mótin voru haldin í Bogfimisetrinu, Dugguvogi 2 í Reykjavík.

Finna má heildarúrslit mótsins á vefsíðu skorskráningarkerfisins ianseo og horfa á öll úrslit úr mótinu á archery tv Iceland youtube rásinni.