Astrid Daxböck í 4 sæti á EM aðeins bráðabana frá bronsverðlaunum

Astrid Daxböck úr BFB Kópavogi var að ljúka keppni á Evrópumeistaramótinu innandyra í Varazdin Króatíu. Astrid var að keppa í tveim keppnisgreinum, sveigboga og berboga og hún því með tvær niðurstöður í bæði einstaklingskeppni og liðakeppni.

Astrid komst áfram í útsláttarleiki liða og einstaklinga í bæði sveigboga og berboga eftir undankeppni EM á þriðjudaginn.

Sveigboga kvenna liðið, sem Astrid var partur af, var hársbreidd frá því að tryggja sér brons verðlaunin á EM í brons úrslitaleik sem endaði jafn 4-4 gegn Moldóvu. Bráðabana (shoot off) þurfti til þess að brjóta jafnteflið og ákvarða hvort liðið hreppti bronsið, en þar hafði Moldóva betur á síðustu örinni. Íslenska liðið endaði í 4 sæti á EM, sem er hæsta sæti sem Ísland hefur náð til dags í sveigboga kvenna. Brons úrslitaleiknum var streymt í beinni og hægt að sjá hann hér fyrir neðan.

Í sveigboga einstaklingskeppni á EM var Astrid sleginn út í 32 manna leikjum gegn landa sínum og liðsfélag Marín Anítu Hilmarsdóttir 6-0 og Astrid endaði því í 17 sæti í einstaklingskeppni sveigboga.

Berboga kvenna liðið, sem Astrid var einnig partur af, komst einnig í brons úrslitaleik EM þar sem þær mættu liði Serbíu. En þar byrjuðu stelpurnar illa og náðu sér ekki á strik og töpuðu leiknum 5-1. Íslenska liðið endaði því í 4 sæti á EM, sem er hæsta sæti sem Ísland hefur náð til dags í berboga kvenna. Brons úrslitaleiknum var streymt í beinni og hægt að sjá hann hér fyrir neðan.

Í berboga einstaklingskeppni á EM var Astrid sleginn út í 32 manna leikjum gegn Ingrid Vasiljevic frá Serbíu 6-0 og Astrid endaði því í 17 sæti í einstaklingskeppni berboga.

34 Íslenskir keppendur og 11 Íslensk lið voru skráð til keppni frá Íslandi í undankeppni Evrópumeistaramótsins sem var á þriðjudagin síðastliðinn. Þetta er stærsti hópur Íslands til dags á EM og því vægast sagt mikið sem er búið að ganga á í vikunni. EM var haldið 19-24 febrúar og Íslensku keppendurnir voru að lenda heima á Íslandi í dag.

Nánari upplýsingar um gengi annarra keppenda Íslands á EM er hægt að finna í fréttum á archery.is og bogfimi.is