Anna Guðrún Yu Þórbergsdóttir út BFB Kópavogi var að ljúka keppni á Evrópumeistaramóti U21 innandyra í Varazdin Króatíu þar sem hún endaði í 5 sæti í liðakeppni og 17 sæti einstaklingskeppni.
Anna komst áfram í útsláttarleiki liða og einstaklinga eftir undankeppni EM á þriðjudaginn.
Sveigboga kvenna U21 liðið, sem Anna var partur af, var slegið út af EM í 8 liða úrslitum í leik sem endaði 6-2 gegn heimaþjóðinni Króatíu. Íslenska liðið endaði í 5 sæti á EM, sem er hæsta sæti sem Ísland hefur náð til dags í sveigboga U21 kvenna.
Í einstaklingskeppni var Anna sleginn út í 32 manna leikjum 6-0 af Andrea Louvarova frá Tékklandi og Anna endaði því í 17 sæti í einstaklingskeppni,
34 Íslenskir keppendur og 11 Íslensk lið voru skráð til keppni frá Íslandi í undankeppni Evrópumeistaramótsins sem var á þriðjudagin síðastliðinn. Þetta er stærsti hópur Íslands til dags á EM og því vægast sagt mikið sem er búið að ganga á í vikunni. EM var haldið 19-24 febrúar og Íslensku keppendurnir voru að lenda heima á Íslandi í dag.
Nánari upplýsingar um gengi annarra keppenda Íslands á EM er hægt að finna í fréttum á archery.is og bogfimi.is