8 keppendur á leið á Youth Cup í Sviss

Átta keppendur frá Íslandi munu keppa á síðara Evrópubikarmóti ungmenna í Sviss 3-11 júní næstkomandi (European Youth Cup leg 2)

Á fyrra Evrópubikarmótinu í maí vann Ísland silfur verðlaun í trissuboga U21 liða og var ekki langt frá því að tryggja sér brons í einstaklingskeppni til viðbótar. Íslendingar eru taldir líklegir til að keppa til verðlauna á seinna Evrópubikarmótinu líka.

Freyja Dís að keppa í brons úrslitum á fyrra Evrópubikarmótinu í Slóveníu í maí

Keppendurnir okkar sem eru að fara út til Sviss núna eru:

  • Freyja Dís Benediktsdóttir – Trissubogi U21
  • Eowyn Marie Mamalias – Trissubogi U21
  • Þórdís Unnur Bjarkadóttir – Trissubogi U21
  • Anna María Alfreðsdóttir – Trissubogi U21
  • Ragnar Smári Jónasson – Trissubogi U21
  • Aríanna Rakel Almarsdóttir – Trissubogi U21
  • Melissa Tanja Pampoulie – Sveigbogi U21
  • Marín Aníta Hilmarsdóttir – Sveigbogi U21

Þó er líklegt að Anna María sé slösuð og óvíst er sem stendur hvort að hún muni geta keppt á mótinu þegar út verður komið. En fjórir keppendur eru í trissuboga kvenna U21 og því mun Ísland alltaf ná að full skipa þriggja manna liðið á mótinu (sem vann silfur á síðasta Evrópubikarmóti).

Krakkarnir okkar munu einnig nota tækifærið og keppa á Svissnesku ungmenna móti sunnudaginn 4 júní, degi áður en Evrópubikarmótið hefst, til gamans og smá upphitunar.

Við munum birta ítarlegar fréttir um gengi Íslands á mótinu eftir að því er lokið og þegar tækifæri gefst á meðan á keppninni stendur. En það verður mögulegt að fylgjast með smáfréttum, niðurstöðum og slíku hér:

Keppendur Íslands á fyrra Evrópubikarmótinu í maí.