Vestfirðingar í Skotíþróttafélag Ísafjarðar áttu gott gengi á Íslandsmóti U21 um helgina og tók 2 silfur og 1 brons vestur.
Auður Alma Viktorsdóttir vann silfur í kvenna og brons um titilinn óháð kyni. Auður og Úlfur Hrafn Hasler unnu svo silfur í félagsliðskeppni fyrir Ísafjörð.
Sýnt var beint frá mótinu á Archery TV Iceland Youtube rásinni
Íslandsmeistaratitill U21 kvenna
Í gull úrslitaleik U21 kvenna mættust Lóa Margrét Hauksdóttir BFB og Auður Alma Viktorsdóttir SkotÍs. Lóa var talin sigurstranglegri þar sem hún keppti um bronsið á EM 2026 og vann silfur á EM árið 2024 og því hátt fjall til að klífa fyrir Auði. Leikurinn var þó merkilega jafn óháð því. Lóa tók fyrstu lotuna 23-21 og því 2-0 forskot í leiknum. Lóa tók lotu 2 23-19 og staðan 4-0. Auður vann þriðju lotu 20-19 og minnkaði muninn 4-2. En Lóa tók svo sigurinn í fjórðu lotu 25-23 og því sigurinn í leiknum 6-2 og titilinn. Þetta var fyrsti Íslandsmeistaratitill Lóu í U21 flokki en hún hefur keppt mest í U18 flokki á ÍM hingað til og fyrsta silfur sem Auður vinnur, en Auður vann sín fyrstu verðlaun, brons, á ÍM U16 2025.
Íslandsmeistaratitillinn U21 allra (óháð kyni)
Í gull úrslitaleik allra (óháð kyni) mættust Ragnar Smári Jónasson og Lóa Margrét Hauksdóttir bæði úr BFB. En þar náði Ragnar sigrinum óvænt 6-4 í leiknum. Þetta var fyrsti Íslandsmeistaratitil sem Ragnar hefur unnið í berboga á ferlinum.
Auður Alma Viktorsdóttir úr SkotÍs tók brons úrslitaleikinn óvænt 6-2 gegn Baldur Freyr Árnason úr BFB og Auður tók því sín fyrstu einstaklingsverðlaun á Íslandsmóti. Baldur var að keppa um brons á EM innandyra 2026 og því ekkert lamb að leika sér við.
Íslandsmeistaratitill U21 félagsliða
Kópavogsmenn (Lóa Margrét Hauksdóttir og Ragnar Smári Jónasson) og Vestfirðingar (Úlfur Hrafn Hasler og Auður Alma Viktorsdóttir) áttust við í gull úrslitaleiknum um Íslandsmeistaratitil U21 félagsliða.
(BF Boginn BFB í Kópavogi og Skotíþróttafélag Ísafjarðar SkotÍs á Ísafirði).
Félagslið BF Bogans slógu Íslandsmetið í Berboga U21 félagsliðakeppni í undankeppni ÍM með 941 stig, metið var áður 839. Kópavogsmenn voru því taldir sigurstranglegri.
Kópavogsmenn unnu þrjár lotur í röð og tóku því nokkuð öruggann sigur 6-0 og Íslandsmeistaratitilinn þó að Vestfirðingar höfðu barist hart þurftu þeir að láta sér silfrið duga í þetta sinn.
SkotÍs endaði í öðru sæti á mótinu í heildar fjölda verðlauna á eftir Boganum úr Kópavogi sem tók efsta sæti í heildina og Hrói Höttur í Hafnarfirði tók þriðja sætið á ÍM U21/50+ á heildar fjölda verðlauna.



