Valgerður með sjötta Íslandsmeistaratitil sinn í röð á ÍM25 um helgina og lengstu sigurröð Íslandsmeistaratitla kvenna

Valgerður Hjaltested vann sinn sjötta Íslandsmeistaratitil í röð í sveigboga kvenna á Íslandsmeistaramótinu 2025 í Þorlákshöfn um helgina.

Valgerður hefur unnið bæði Íslandsmeistaratitla sveigboga kvenna innandyra og utandyra árið 2023, 2024 og 2025. Með Íslandsmeistara titlinum utandyra sem hún vann um helgina setti hún lengstu óbrotnu sigurröð Íslandsmeistaratitla sveigboga kvenna utandyra eftir að hafa unnið titilinn 3 ár í röð. Ásamt því að taka mesta fjölda Íslandsmeistaratitla sveigboga kvenna 6, og lengstu óbrotnu sigurröð Íslandsmeistaratitla sveigboga kvenna 6.

Ótrúlegt að Valgerður hafi náð því miðað við styrk andstæðinga hennar í flokknum sem er töluverður. Enda oftar en hafa úrslitaleikirnir verið gífurlega jafnir og margir endað í jafntefli og bráðabana sem hafa verið ótrúlega spennandi að fylgjast með síðustu ár.

En aftur að Íslandsmeistaramótinu í Þorlákshöfn.

Valgerður mætti í úrslitaleiknum Marín Anítu Hilmarsdóttir liðsfélaga sínum í 9 skiptið um Íslandsmeistaratitilinn í sveigboga kvenna. (Aðeins einu sinni á síðust 5 árum hefur einhver önnur kona komst í gull úrslitaleikinn). Vala tók fyrstu lotuna 25-22 og 2-0 forystu. Vala jók svo forskotið í 4-0 með naumum sigri á lotu 2 24-23. Marín tók þriðju lotuna örugglega 27-16 og staðan 4-2. Vala tók svo fjórðu lotuna naumlega 24-23 og þar með sigurinn 6-2, gullið og sjötta Íslandsmeistaratitil sinn í röð í sveigboga kvenna.

Valgerður vann einnig brons í keppni um titilinn óháð kyni með 6-2 sigri á liðfélaga sínu Ragnari. Þar tók Marín titilinn gegn Ara Emin Björk úr ÍF Akur á Akureyri.

Valgerður og Marín ásamt liðsfélaga sínum í Boganum Ragnari Þór Hafsteinssyni unnu Íslandsmeistaratitilinn í félagsliðakeppni sveigboga örugglega 6-0. En þau þrjú hafa sem lið unnið alla fjóra Íslandsmeistaratitla félagsliða í íþróttinni fyrir BF Bogann í sveigboga frá því að félagsliðakeppni var breytt í úr kynjuðum liðum árið 2024.

Samantekt af árangri Valgerðar á ÍM25 utandyra: 

  • Íslandsmeistari Sveigboga kvenna – Valgerður Hjaltested – BFB
    • Þriðji titill Völu utandyra í röð. How does she do it?
  • Íslandsmeistari félagsliða Sveigboga – BF Boginn – Annar titillinn félagsins í röð utandyra (fjórði í röð inni og úti)
    • Marín Aníta Hilmarsdóttir
    • Ragnar Þór Hafsteinsson
    • Valgerður Hjaltested
  • Brons sveigbogi (óháð kyni) – Valgerður Hjaltested
  • Mesti fjöldi Íslandsmeistaratitla sveigboga kvenna – 6 (metið var áður 5 Marín)
  • Lengsta óbrotna sigurröð Íslandsmeistaratitla sveigboga kvenna – 6 (metið var áður 5 Marín)
  • Lengsta óbrotna sigurröð Íslandsmeistaratitla sveigboga kvenna utandyra – 3 (metið var áður 2 Marín)

Mögulegt er að lesa nánar um Íslandsmeistaramótið í frétt Bogfimisambands Íslands hér:

Íslandsmeistaramótið utandyra byrjaði í ofsaveðri en endaði í blíðu og nýtt þátttökumet á árinu á Íslandsmótum í meistaraflokki

Auka til gamans:

Íslandsmeistaratitlar kvenna hafa Vala og Marín hafa mætt hvor annarri í gull úrslitum sveigboga kvenna á 9 af síðustu 10 Íslandsmeistaramótum:

  • 2021 innandyra Vala 2-6 Marín
  • 2021 utandyra Marín 6-0 Guðný (Vala 0-6 Rakel)
  • 2022 innandyra Vala 5-6 Marín í bráðabana
  • 2022 utandyra Vala 3-7 Marín
  • 2023 innandyra Vala 6-4 Marín
  • 2023 utandyra Vala 6-0 Marín
  • 2024 innandyra Vala 6-4 Marín
  • 2024 utandyra Vala 6-5 Marín í bráðabana
  • 2025 innandyra Vala 6-4 Marín
  • 2025 utandyra Vala 6-2 Marín

Íslandsmeistaratitlar óháð kyni hafa Vala og Marín aldrei keppt á móti hver annarri í úrslitum. 

  • 2023 innandyra Marín 4-6 Haraldur (Vala 6-2 Oliver)
  • 2023 utandyra Marín 6-0 Haraldur (Vala 5 sæti)
  • 2024 innandyra Vala 6-5 Ragnar (Marín 6-0 Anna)
  • 2024 utandyra Marín 6-0 Ragnar (Vala 6-0 Georg)
  • 2025 innandyra Marín 6-5 Ari (Vala 5-6 Ragnar)
  • 2025 utandyra Marín 6-2 Ari (Vala 6-2 Ragnar)

Þetta er nánast eins og “rock/paper/scissors” Marín vinnur stráka, Vala vinnur Marín, einhver strákur vinnur Völu 😂