Valgerður Hjaltested með personal best á lokamóti um þátttökurétt á Ólympíuleika

Valgerður Einarsdóttir Hjaltested skoraði personal best lokamóti um þátttökurétt á Ólympíuleika 2024. Skorið var 589 stig sem er ekki langt frá skorviðmiðum á Ólympíuleika sem eru 610 stig. Valgerður skoraði hæst á þessu ári í einni umferð 307 stig sem væri 614 stig ef hún gerði það tvisvar í röð á sama móti, þannig að þetta er allt á góðri leið hjá henni. Í útsláttarkeppni mótsins gekk ekki eins vel og Valgerður var slegin út í fyrsta útslætti af Ida-Lotta Lassila frá Finnlandi 6-0.

Samkeppni um þátttökurétti á Ólympíuleika er orðin gífurlega hörð. Sem dæmi vann engin Norðurlandaþjóð þátttökurétt á Ólympíuleikana 2024, sem er í fyrsta sinn í sögunni sem það gerist. Mögulegt er að að lesa nánar um það í þessari frétt á bogfimi.is:

Ísland ekki með þátttökurétt á Ólympíuleika 2024 eftir lokamótið í Tyrklandi

Lokamót um þátttökurétt á Ólympíuleikana 2024 (Final World Qualification Tournament FWQT) var haldið í Antalya Tyrklandi að þessu sinni 13-17 júní. Það var hitabylgja að ganga yfir Tyrkland á meðan á mótinu stóð og því margar regnhlífar á lofti sem sólhlífar. Valgerður hélt sér einnig kaldri með því að hella reglubundið ísmolavatni yfir bolinn sinn og leyfa því að gufa upp til að gleypa hitann.