Valgerður Hjaltested með brons á EM 2025

Valgerður Einarsdóttir Hjaltested vann brons verðlaun í berboga kvenna liðakeppni á Evrópumeistaramótinu innandyra 2025 í Samsun Tyrklandi 17-23 febrúar. Þetta eru fyrstu verðlaun sem Valgerður hefur unnið á EM í meistaraflokki.

Berboga kvenna liðið tók bronsið í meistaraflokki á EM gegn heimaþjóðinni Tyrklandi, í einum mest spennandi úrslitaleik sem Ísland hefur nokkurtíma átt. Brons úrslita leikurinn byrjaði 4-0 yfir fyrir Íslandi, en Tyrkir náðu að jafna leikinn 4-4 og knýja fram bráðabana um sigur.

Bráðabaninn endaði svo líka í jafntefli 21-21 og því þurfti að mæla hvort liðið ætti örina sem væri nær miðju til þess að ákvarða sigurvegara leiksins. Það getur ekki verið jafnari leikur en það. Þar sem Íslensku stelpurnar voru með örina sem var næst miðju í jöfnum bráðabana þá sigruðu þær og Íslenska liðið tók því bronsið á EM í berboga kvenna.

Glæsilegt hjá stelpunum að taka sigur gegn Tyrklandi á heimavelli í einni flottustu bogfimi þjóðarhöll sem fyrir finnst í Evrópu.

Ítalía vann titilinn í liðakeppni í gull úrslitaleiknum við Rúmeníu 5-1

Brons berbogi kvenna lið m.fl.
Liðsmenn:

  • Guðbjörg Reynisdóttir – BF Hrói Höttur Hafnarfirði
  • Valgerður E. Hjaltested – BF Boginn Kópavogur
  • Astrid Daxböck – BF Boginn Kópavogur

Vala hefur einu sinni áður keppt um brons verðlaun á EM í meistaraflokki með sveigboga kvenna liðinu sem tapaði bronsleiknum í jafntefli og bráðabana á EM 2024 gegn Moldóvu.

Vala var að keppa í bæði berboga og sveigboga flokki á EM. Í liðakeppni sveigboga voru stelpurnar okkar slegnar út í 8 manna úrslitum EM af Moldóvu 5-1 og enduðu í 5 sæti á EM. Moldóva og Ísland kepptu um brons á EM í fyrra, þar sem leikurinn endaði í bráðabana sigri Moldóvu sem tók bronsið.

Í einstaklingskeppni endaði Vala í 9 sæti í berboga eftir að vera slegin út í 16 manna úrslitum af Giulia Mantilli frá Ítalíu. Í sveigboga einstaklingskeppni var Vala slegin út af Elisabeth Straka frá Austurríki í 32 manna úrslitum.

Vala er mjög ánægð með brons verðlaunin með berboga liðinu, sem voru mjög óvænt þar sem Tyrkneska liðið var talið sigurstranglegra í leiknum. En hún ætlar samt að halda áherslunni sinni á það að verða betri í sveigboga. Vala er einnig starfsmaður Bogfimisambands Íslands og var annar liðsstjóri/fararstjóri á mótinu, nóg að gera hjá henni hehe. Þetta eru fyrstu verðlaun á EM sem Ísland hefur unnið í berboga meistaraflokki í sögu íþróttarinnar. Er hægt að vera ósáttur við það.

Niðurstöður Valgerðar á mótinu í einstaklings og liðakeppni:

  • Valgerður E. Hjaltested – 9 sæti berboga kvenna (slegin út af Ítala í 16 manna úrslitum)
  • Valgerður E. Hjaltested – 17 sæti sveigboga kvenna (slegin út af Austurrískri konu í 32 manna úrslitum)
  • Berboga kvenna lið meistaraflokkur – Brons verðlaun (3 sæti)
  • Sveigboga kvenna lið meistaraflokkur – 5 sæti (Slegnar út af Moldóvu í 8 liða úrslitum)

Nánari upplýsingar um EM 2025 er hægt að finna í frétt Bogfimisambands Íslands hér:

EM2025: Ísland vann til 5 verðlauna á EM