Valgerður heldur sigurröðum sínum lifandi í Íslandsmeistaratitlum

Valgerður E. Hjaltested (Vala) úr BFB Kópavogi vann Íslandsmeistaratitil kvenna innandyra fjórða árið í röð, vann sinn sjöunda Íslandsmeistaratitil kvenna í röð á og vann sinn fimmta Íslandsmeistaratitil í röð í félagliðakeppni á Íslandsmeistaramótinu innandyra í Ólympískum sveigboga í Bogfimisetrinu um helgina.

Gífurlega sterk frammistaða að venju frá Valgerði á Íslandsmeistaramótinu í meistaraflokki, þrátt fyrir að bardaginn sé gífurlega harður þar sem samkeppnin er mikil.

Íslandsmeistaratitill kvenna: Marín og Vala enn á toppnum og börðust um Íslandsmeistaratitilinn í sveigboga kvenna 10 skiptið í röð!!

Vala var önnur í undankeppni ÍM og átti frekar auðvelda vegferð upp í gull úrslitaleik ÍM þar sem hún vann alla sína leiki 6-0 eða 6-2 í 16 manna/8 manna og undanúrslitum.

Um Íslandsmeistaratitil kvenna áttust svo enn og aftur við Valgerður E. Hjaltested (Vala) og Marín Aníta Hilmarsdóttir sem var efst í undankeppni, báðar úr BFB.

Vala vann fyrstu tvær loturnar 28-27 og 29-26 og var með 4-0 forystu í leiknum, Marín tók næstu tvær lotur 30-28 og 27-26 og stelpurnar því jafnar 4-4 þegar aðeins ein lota var eftir af leiknum. Í loka lotuna var útlit fyrir að Vala gæti hafa unnið leikinn 28-27, en dómarinn við nánari skoðun dæmdi eina örina sem lægra skorið, stelpurnar jöfnuðu því síðustu lotuna 27-27 og deildu því stigunum sem þýddi að leikurinn endaði í jafntefli 5-5. Til að ákvarða hvort þeirra væri sigurvegari leiksins og myndi hreppa Íslandsmeistaratitil kvenna var því nauðsynlegt að beita bráðabana, 1 ör sá sem hittir nær miðju vinnur. Marín skaut fyrst með góða 9 en Vala náði að toppa það með ör í 10 hringnum og tók því sinn sjöunda Íslandsmeistaratitil kvenna í röð og fjórða titilinn í röð á ÍM innandyra.

Það er alltaf mjótt á munum á milli Völu og Marín og þessi úrslitaleikur milli þeirra um Íslandsmeistaratitilinn í kvenna er nánast kominn í áskrift. Þær hafa keppt í gull úrslitaleik kvenna um Íslandsmeistaratitilinn síðustu 10 Íslandsmeistaramót í röð!!! Og sjötta árið í röð á ÍM innandyra!! Sem er í báðum tilfellum án vafa met í íþróttinni að sömu andstæðingar mætist þetta oft í röð í úrslitum! Og alltaf eru leikirnir spennandi og jafnir á milli þeirra og má nánast engu muna!

  • 2021 Utandyra Marín vann, Vala var ekki andstæðingurinn Þetta er síðasta ÍM sem Vala og Marín kepptu ekki um gullið á ÍM.
  • 2021 Innandyra Marín vann Völu 6-2 (107-104)
  • 2022 Innandyra Marín vann Völu 6-5 (138-133) – 5-5 jafntefli bráðabani sem Marín vann 10-8
  • 2022 Utandyra Marín vann Völu 7-3 (115-105)
  • 2023 Innandyra Vala vann Marín 6-4 (130-130)
  • 2023 Utandyra Vala vann Marín 6-0 (77-69)
  • 2024 Innandyra Vala vann Marín 6-4 (137-136)
  • 2024 Utandyra Vala vann Marín 6-5 (109-99) – 5-5 jafntefli bráðabani sem Vala vann 9-8
  • 2025 Innandyra Vala vann Marín 6-4 (139-134)
  • 2025 Utandyra Vala vann Marín 6-2 (89-95)
  • 2026 Innandyra Vala vann Marín 6-5 (138-137) 5-5 jafntefli bráðabani Vala vann 10-9

Alveg ótrúlegt, og ótrúleg frammistaða hjá þeim báðum og ótrulega jafnir leikir allan þennan áratug hjá þeim, og okkur hlakkar því mikið til að sjá fleiri leiki milli þeirra í framtíðinni. Þó að bronsverðlaunahafinn í kvenna gæti mögulega brotið þetta úrslitaleikja met sem stelpurnar eru að safna upp í framtíðinni þar sem hún vann titilinn óháð kyni.

Anna Guðrún Yu Þórbergsdóttir einnig úr BFB vann bronsið á ÍM kvenna á móti Katrín Sif Antonsdóttir úr ÍFA Akureyri 6-0.

Íslandsmeistarar Kvenna – Meistaraflokkur Sveigboga af bogfimi.is

Sveigbogi Kvenna Innandyra
2026 Valgerður E. Hjaltested – BF Boginn – Kópavogi
2025 Valgerður E. Hjaltested – BF Boginn – Kópavogi
2024 Valgerður E. Hjaltested – BF Boginn – Kópavogi
2023 Valgerður E. Hjaltested – BF Boginn – Kópavogi
2022 Marín Aníta Hilmarsdóttir – BF Boginn – Kópavogi
2021 Marín Aníta Hilmarsdóttir – BF Boginn – Kópavogi
2020 Marín Aníta Hilmarsdóttir – BF Boginn – Kópavogi
2019 Kelea Quinn – BF Boginn – Kópavogi
2018 Astrid Daxböck – BF Boginn – Kópavogi

Sveigbogi Kvenna Utandyra
2026
2025 Valgerður E. Hjaltested – BF Boginn – Kópavogi
2024 Valgerður E. Hjaltested – BF Boginn – Kópavogi
2023 Valgerður E. Hjaltested – BF Boginn – Kópavogi
2022 Marín Aníta Hilmarsdóttir – BF Boginn – Kópavogi
2021 Marín Aníta Hilmarsdóttir – BF Boginn – Kópavogi
2020 Kelea Quinn – ÍF Akur – Akureyri
2019 Guðný Gréta Eyþórsdóttir – Skaust – Egilstaðir
2018 Astrid Daxböck – BF Boginn – Kópavogi

Íslandsmeistaratitill félagsliða: Félagslið Völu og Akureyri eigast við um Íslandsmeistaratitilinn.

Um Íslandsmeistaratitilinn í félagsliðakeppni áttust við Íþróttafélagið Akur (ÍFA) á Akureyri og Bogfimifélagið Boginn (BFB) í Kópavogi. 4 lotur, 2 stig fyrir að vinna lotu (þannig að 8 stig í pottinum), liðið sem er fyrr að ná 5 stigum tekur sigurinn.

  • Leikmenn liðs BF Bogans í Kópavogi:
    • Marín Aníta Hilmarsdóttir
    • Valgerður E. Hjaltested
    • Baldur Freyr Árnason
  • Leikmenn liðs ÍF Akur á Akureyri
    • Katrín Sif Antonsdóttir
    • Emma Rakel Björnsdóttir
    • Eva Kristín Sólmundsdóttir

Í úrslitaleiknum um Íslandsmeistaratitil félagsliða áttust BF Boginn, sem hafði unnið alla sína leiki örugglega til að komast í úrslitaleikinn, og ÍF Akur.

Boginn vann fyrstu umferð leiksins 58-52 og tók 2-0 forystu í leiknum, næstum fullkomin umferð frá Kópavogsmönnum 58 af 60 mögulegum og erfitt fyrir Akureyringa að veita mótspyrnu á móti slíkri umferð. Með skorinu í fyrstu umferðinni hefðu Kópavogsmenn unnið fyrstu lotuna í flestum landsleikjum á EM gegn öðrum þjóðum! Kópavogsmenn í BFB tóku einnig umferð 2 í úrslitaleiknum, en þó með mjög littlum mun 51 á móti 49 stigum frá Akureyringum og staðan því 4-0. Umferð sem Akureyringar sýndu vel í undanúrslitum að þær gætu skorað hærra en þar sem helmingur umferða þeirra var 54 stig í undanúrslitaleiknum. Í þriðju umferðinni sýndu Kópavogsmenn enga miskunn, og Akureyringar náðu ekki góðum lotum eins og undanúrslitum og BF Boginn tók sigurinn í lotunni með littlum mun 52-48 og þeir tóku því einnig sigurinn í gull úrlitaleiknum 6-0.

Með því tryggði BF Boginn sér fimmta Íslandsmeistaratitil sinn í röð í félagsliðakeppni og Vala lykilmaður í liðinu að venju.

BFB2 vann brons úrslitaleikinn 6-0

Nánari upplýsingar um árangur Völu og almennt um Íslandsmeistaramótið er hægt að finna í frétt Bogfimisambands Íslands með því að smella hér fyrir neðan

Íslandsmeistaramót sveigboga Anna Guðrún tekur óvæntan sigur og sinn fyrsta titil í meistaraflokki