Valgerður E. Hjaltested úr BF Boganum í Kópavogi var að keppa á Evrópumeistaramóti í bogfimi innandyra í vikunni í Plovdiv Búlgaríu.
Í einstaklingskeppni sveigboga kvenna endaði Vala í undankeppni EM í 20 sæti með 562 stig aðeins tveim stigum frá Íslandsmetinu sem er 564 stig, en Vala var nánast allan fyrri helming undankeppni EM meðal topp 10 en féll lítillega í seinni helmingi, enda lítið sem skilur að þá efstu. Frábær frammistaða og personal best hjá henni. Aðeins 32 efstu einstaklingar vinna þátttökurétt í útsláttarkeppni EM.
Vala mætti því 32 manna lokakeppni EM Hanna Marusava frá AIN (Neutral athlete). Þar var Vala algerlega óstöðvandi og tók sigurinn örugglega 6-2 með næstum fullkomið skor. Vala hélt því áfram í 16 manna úrslit,
Í 16 manna úrslitum EM mætti Vala Veronika Marchenko frá Úkraínu fyrrum heims- og Evrópumeistara. Þar sem enginn séns var gefin og sú Úkraínska átti ótrúlegann leik 30-30-30 fullkomið skor í öllum umferðum og lítið sem Vala gat gert þar sem hún gaf ekkert færi á sér. Vala var því slegin út af EM 6-0 í einstaklingskeppni í 16 manna úrslitum og endaði í 9 sæti.
Í blandaðri liðakeppni (efsti kk og kvk frá hverju landi í blönduðu liði, heitir mixed team á ensku) endaði Ari ásamt liðsfélaga sínum Valgerði í 11 sæti í undankeppni EM. Efstu 16 lið halda áfram í lokakeppni EM (útsláttarleiki)
Þau mættu því Georgíu sem var í 6 sæti í undankeppni EM. 16 liða úrslitaleikurinn var vægast sagt jafn og okkar fólk var að standa sig frábærlega, en Georgía vann fyrstu umferðina með 1 stigs mun og tók forystuna 2-0, liðin jöfnuðu umferð 2 og staðan 3-1 í þriðju umferð náði Georgía svo að taka sigurinn í lotunni aftur með aðeins 1 stigi og tóku því sigurinn í leiknum 5-1. Jafn leikur sem var súrt að tapa með þetta littlum mun og hefði verið gaman að komast í 8 liða úrslit EM eða lengra, en sú varð ekki rauninn að þessu sinni. Það er ekki hægt að setja út á frammistöðu okkar fólks enda munurinn á milli liðana í leiknum nánast enginn og lukkan var bara Georgíu megin að þessu sinni á þessum degi.
Í liðakeppni sveigboga kvenna (3kvk) endaði Vala ásamt liðsfélögum í Íslenska liðinu í 7 sæti í undankeppni EM. Efstu 16 lið halda áfram í lokakeppni EM (útsláttarleiki). Stelpurnar slógu einnig Íslandsmetið í undankeppni sveigboga kvenna landsliða kvenna innandyra með undankeppnisskor upp á 1610 stig vs 1549 sem metið var áður.
Stelpurnar voru svo slegnar út í 8 liða úrslitum á móti Úkraínu þar sem okkar stelpur stóðu sig flott en Úkraína átti sérstaklega sterkann leik og gaf ekkert færi á sér. Ísland var því slegið út af EM og endaði því í 7 sæti. Úkraína sýndi óvenju mikinn styrk í öllum leikjum gegn Íslandi á EM.
Vala hefur lokið keppni á EM innandyra að þessu sinni er gull og brons úrslitaleikir EM verða haldnir 20-21 febrúar næstkomandi. Nokkrir Íslendingar eru að keppa til verðlauna í sínum keppnigreinum á EM, en fjallað verður nánar um það og EM almennt í öðrum fréttum á archery.is og bogfimi.is.



