
Þórunn Erla Harðardóttir í Skotíþróttafélagi Ísafjarðar tók Norðurlandameistaratitilinn í liðakeppni og 4 sæti í einstaklingskeppni á ungmenna (NUM) sem haldið var 3-6 júlí í Boras Svíþjóð.
Þórunn mætti Stella Wedholm Albertsdottir í brons úrslitum í einstaklingskeppni sveigboga kvenna Open U21 á NUM. Þar sem að Stella tók sigurinn 6-2 og Þórunn endaði því í 4 sæti í einstaklingskeppni á NM ungmenna 2025.
Í gull úrslita leik liðakeppni mætti Þórunn, ásamt Stella Wedholm Albertsdottir og Pal Greger Hansen Bryhn í sameinuðu Norðurlandaliði, liði Íslands. Þar tóku Þórunn og liðsfélagar öruggann sigur 6-0 og Norðurlandameistaratitilinn í sveigboga open U21 liðakeppni.
Niðurstöður af NM ungmenna 2025:
- Þórunn Erla Harðardóttir – 4 sæti – sveigboga U21 Open kvenna – SFÍ
- Þórunn Erla Harðardóttir – Norðurlandameistari liða Sveigboga U21 Open (Nordic Team)
Frekari upplýsingar er mögulegt að finna í frétt Bogfimisambands Íslands hér fyrir neðan
Íslendingar á NM ungmenna taka heim 4 gull, 9 silfur og 6 brons