
Þorsteinn Halldórsson var að ljúka keppni á European Para Archery Cup Leg 1 í Róm Ítalíu í dag. Þorsteinn var eini keppandi Íslands á mótinu og endaði í 17 sæti í einstaklingskeppni trissuboga karla opnum flokki fatlaðra (Compound Men Open).
Þorsteinn var í 31 sæti í undankeppni mótsins með skorið 622.
Í útsláttarkeppni mótsins sat Þorsteinn hjá í 48 manna útsláttarleikjum og mætti svo Jonathon Milne frá Ástralíu í 32 manna úrslitum. Þar var sá Ástralski sterkari og vann leikinn gegn Þorsteini 147-131 og sló Þorstein út af mótinu. Þorsteinn endaði því í 17 sæti mótsins.