Þórdís Unnur tók sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil utandyra á ÍM25 um helgina og jafnaði yngsta aldur Íslandsmeistara

Þórdís Unnur Bjarkadóttir vann sinn fyrsta Íslandsmeistara titil einstaklinga í meistaraflokki utandyra á Íslandsmeistaramótinu utandyra (ÍM25) sem haldið var í Þorlákshöfn helgina 21-22 júní.

Í gull úrslitaleik trissuboga kvenna mættust Þórdís og Anna María Alfreðsdóttir úr ÍF Akri. Þórdís byrjaði með eins stigs forskot eftir fyrstu umferð 26-25 og jók svo forskotið um eitt eftir 23-22 stig í annarri umferð. Jók svo forskotið um 2 stig í viðbót 26-24 í umferð 3 og aftur 22-20 í fjórðu umferð og staðan 97-91. Þórdís tók svo loka umferðina 27-23 og tók sigurinn örugglega og jók forskotið í hverri umferð leiksins 124-115.

Áhugvert er að nefna að Anna María var yngsta kona til þess að vinna Íslandsmeistaratitil utandyra þegar að hún vann titilinn 2020 17 ára gömul. Þórdís er 17 ára gömul og var að vinna fyrsta Íslandsmeistaratitilinn utandyra. Við köllum þær báðar yngstu stelpu til þess að vinna Íslandsmeistaratitil í meistaraflokki þar sem að í bogfimi er miðað við fæðingar ár og leyfum þeim sjálfum að reikna út fæðingardaga/mánuð og dagsetningu Íslandsmótana ef þær vilja keppa í því líka upp á mínútu hvor er yngri.

Töluverð samkeppni er á Íslandi í trissuboga kvenna og Íslandsmeistaratitill trissuboga kvenna er erfiðasti titilinn til að verja á Íslandi.

Aðeins tvær aðrar konur í skráðri sögu íþróttarinnar hafa náð að vinna bæði Íslandsmeistaratitilinn innandyra og utandyra á sama ári (Astrid Daxböck 2018 og Anna María Alfreðsdóttir 2022). Þórdís er því þriðja konan sem nær þeim árangri og sú yngsta 17 ára.

Aðeins ein kona hefur náð að halda Íslandsmeistaratitli milli ára í sömu grein í skráðri sögu íþróttarinnar (Eowyn Marie Mamalias 2019-2020 innandyra). Ef Þórdís nær að vinna annað hvorn titilinn 2026 verður hún önnur konan sem nær því.

Þórdís vann einnig Íslandsmeistaratitilinn í félagsliðakeppni á Íslandsmeistaramótinu um helgina ásamt liðsfélögum sínum Ragnari og Degi í Boganum. Þau slógu einnig Íslandsmetið í útsláttarkeppni félagsliða í úrslitaleiknum með einu stigi 200 stig á móti gamla metinu sem var 199 stig.

Þórdís vann einnig silfur í keppni um titilinn óháð kyni.

Samantekt af árangri Þórdísar á ÍM25 utandyra: 

  • Íslandsmeistari Trissuboga kvenna – Þórdís Unnur Bjarkadóttir – BFB
    • Fyrsti titill Þórdísar utandyra. Vann einnig innandyra titilinn í mars. Rising star.
  • Silfur Trissuboga (óháð kyni) – Þórdís Unnur Bjarkadóttir – BFB
  • Íslandsmeistari Trissuboga – BF Boginn – Fyrsti titil félagsins utandyra
    • Þórdís Unnur Bjarkadóttir
    • Dagur Örn Fannarsson
    • Ragnar Smári Jónasson
  • BF Boginn – Íslandsmet Trissuboga útsláttarkeppni félagsliða – 200 stig (metið var áður 199 stig)
    • Þórdís Unnur Bjarkadóttir
    • Dagur Örn Fannarsson
    • Ragnar Smári Jónasson

Mögulegt er að lesa nánar um Íslandsmeistaramótið í frétt Bogfimisambands Íslands hér:

Íslandsmeistaramótið utandyra byrjaði í ofsaveðri en endaði í blíðu og nýtt þátttökumet á árinu á Íslandsmótum í meistaraflokki