
Þórdís Unnur Bjarkadóttir úr Boganum Kópavogi vann alla þrjá Íslandsmeistaratitla U18 sem henni stóð í boði að keppa um á Íslandsmóti U18 sem haldið var laugardaginn 8 mars.
Í einstaklingskeppni trissuboga kvenna U18 kepptu í gull úrslitaleiknum Þórdís og Sigurbjörg Katrín Marteinsdóttir úr ÍFA Akureyri. Þórdís vann leikinn og titilinn 141-102 í yfirburðar leik.
Í einstaklingskeppni (óháð kyni) trissuboga U18 kepptu í gull úrslitaleiknum Þórdís og liðsfélagi hennar Magnús Darri Markússson. Þórdís vann úrslitaleikinn 141-137 í nokkuð jöfnum leik þar sem Þórdís var ekki langt frá Íslandsmetinu, en Þórdís kom út á toppnum og tók titilinn.
Í trissuboga félagsliðakeppni tóku Þórdís og Magnús Darri Markússon liðsfélagi hennar titilinn. Þau tóku sigurinn 1148-1054 gegn Boganum-2 sem tók silfrið. Þórdís og Magnús settu einnig Íslandsmetið í trissuboga U18 félagsliðakeppni með skorið 1148.
Fullkomin frammistaða hjá Þórdísi á ÍM U18. Það er lítið meira hægt að gera en að vinna allt.
- Íslandsmeistari trissubogi U18 kvenna
- Íslandsmeistari trissubogi U18 (óháð kyni)
- Íslandsmeistari trissubogi U18 félagsliðakeppni
- Íslandsmet trissubogi U18 félagsliðakeppni 1148 stig