Þórdís Unnur Bjarkadóttir vann Íslandsmeistaratitil kvenna U21 og Íslandsmeistaratitil félagsliða U21 á Íslandsmóti U21 í Bogfimisetrinu í dag. Þórdís sló einnig Íslandsmetið í félagsliðakeppni og jafnaði Íslandsmetið í kvenna á mótinu.
Íslandsmeistaratitill kvenna U21 einstaklinga
Þórdís vann Íslandsmeistaratitil U21 kvenna nokkuð örugglega í 142-136 gull úrslitaleik gegn liðsfélaga sínum úr BFB Sóldís Inga Gunnarsdóttir. Oddný Soffía Sigurðardóttir úr BFHH í Hafnarfirði vann bronsið í kvenna 138-136 gegn Elísabet Fjóla Björnsdóttir úr BFB.
Íslandsmeistaratitill félagsliða U21
Þórdís vann Íslandsmeistaratitil U21 félagsliða með Bogfimifélaginu Boganum í gull úrslitaleik gegn BFB liði2 þar sem lið Þórdísar tók öruggann sigur með nýtt Íslandsmet 154-146. En þau slógu einnig Íslandsmetið í undanúrslitum einnig með 154 stig. BFB lið3 tók bronsið 146-141 á móti BFB liði4.
Íslandsmeistara titil einstaklinga óháð kyni U21
Þórdís vann silfur í keppni um Íslandsmeistaratitil U21 óháð kyni eftir tap í gull úrslitaleik á gegn liðsfélaga sínum Ragnari Smári Jónassyni. En Þórdís hafði jafnað Íslandsmetið í meistraflokki í undanúrslitum með 146 stig. Magnús Darri Markússon tók brons úrslitin gegn Henry Snæbjörn Johnston 143-140.
Heljarinnar vel gert hjá Þórdísi um helgina.
- Íslandsmeistari U21 kvenna
- Íslandsmeistari félagsliða U21
- Silfur um titilinn óháð kyni U21
- Íslandsmet útsláttarkeppni félagsliða trissuboga U21 BF Boginn 154 stig, metið er 151 stig (þau slógu metið tvisvar á ÍM U21)
- Þórdís Unnur Bjarkadóttir
- Ragnar Smári Jónasson
- Þórdís Unnur Bjarkadóttir BFB jafnaði Íslandsmetið í útsláttarkeppni trissuboga meistaraflokki og U21 kvenna 146 stig
- BF Boginn U21 félagsliðið (Þórdís og Ragnar) voru aðeins einu stigi frá Íslandsmetinu með 1152 stig en metið er 1153 stig
Íslandsmeistaramóti í meistaraflokki trissuboga verður á sunnudaginn 22.03.2026 og Þórdís er einnig skráð þar til keppni. En hvort að hún nær að endurtaka U21 árangurinn í meistaraflokki og verja Íslandsmeistaratitil sinn í meistaraflokki kvenna frá síðasta ári mun ráðast á morgun.



