Þórdís Unnur Íslandsmeistari í ÖLLU

Þórdís Unnur Bjarkadóttir BFB gerði sér lítið fyrir og vann alla Íslandsmeistaratitla í meistaraflokki trissuboga á Íslandsmeistaramótinu í trissuboga sem haldið var í Bogfimisetrinu sunnudaginn 22 mars.

Þórdís vann alla 3 Íslandsmeistaratitlana sem henni stóðu til boða í meistaraflokki:

  • Einstaklings titil kvenna (annað árið í röð)
  • Félagsliða titilinn með BF Boganum
  • Einstaklings titilinn óháð kyni (í fyrsta sinn og yngst til að ná því)

Íslandsmeistaratitill kvenna: Þórdís kom inn sterkari á ÍM en nokkru sinni áður og varði titilinn sinn frá síðasta ári

Í gull úrslitum kvenna um Íslandsmeistaratitilinn áttust við Þórdís Unnur Bjarkadóttir 18 ára og Eowyn Marie Mamalias 22 ára báðar úr BFB Kópavogi.

Þórdís var það sem mætti kalla “the favorite to win” þar sem hún var hæst í undankeppni ÍM þar sem hún var aðeins 2 stigum frá sínu eigin Íslandsmeti með 578 stig á móti núverandi meti 580 sem hún setti sjálf á EM innandyra í febrúar sem setti hana í topp 8 á undankeppni EM.

Þórdís átti nokkuð auðvelda vegferð upp í gull úrslitaleikinn. En Eowyn lenti í hörðum bardaga í undanúrslitum í leik á móti Önnu Maríu, sem endaði í jafntefli 141-141 og þurfti því bráðabana til að ákvarða hver myndi mæta Þórdísí í gull úrslitum. Þar náði Eowyn sigrinum með 10 vs 9.

Þórdís og Eowyn mættust því í gull úrslitaleiknum og voru jafnar í fyrstu umferðinni 29-29 en svo jók Þórdís muninni í hverri umferð eftir það og sigraði úrslitaleikinn örugglega 145-137. Þórdís tók því öruggann sigur í gull úrslitum meistaraflokks kvenna og varði Íslandsmeistaratitilinn sem hún vann 2025 með því að taka titilinn annað árið í röð.

Þórdís skoraði aðeins einu stigi frá Íslandsmeti útsláttarleiks kvenna í gull úrslitunum með 145 stig en metið er 146, ásamt því að gera það sama í tveim öðrum leikjum á ÍM. Þrisvar 1 stigi frá Íslandsmetinu.

Anna María Alfreðsdóttir 23 ára úr ÍFA Akureyri vann bronsið á ÍM kvenna á móti Astrid Daxböck 46 ára úr BFB 139-127

Íslandsmeistaratitill félagsliða: Nýtt Íslandsmet og fimmti titill BF Bogans í röð.

BF Boginn var yfirgnæfandi í liðakeppni um Íslandsmeistaratitil félagsliða. Sérstaklega áhugavert var að sterkasta lið mótsins samanstóð af þremur sterkustu keppendum í undankeppni ÍM í meistaraflokki sem voru öll sömu ungmenni sem kepptu líka um titlana í U21 flokki á ÍM U21 á laugardaginn. Ansi sterk ungmenni á uppleið.

Lið BF Bogans sló Íslandsmet félagsliða í undankeppni mótsins, með töluverðum mun 1731 en metið var 1715 áður.

BF Boginn tók Íslandsmeistaratitilinn í félagsliðakeppni í gull úrslitum 229-224, sem er aðeins einu stigi frá núverandi Íslandsmeti í útsláttarleik félagsliða, sem er 230 stig. Með því tryggði BF Boginn sér fimmta Íslandsmeistaratitil sinn í röð í félagsliðakeppni trissuboga.

  • BF Boginn Íslandsmeistari í félagsliðakeppni leikmenn:
    • Ragnar Smári Jónasson
    • Þórdís Unnur Bjarkadóttir
    • Magnús Darri Markússon

Lið 2 frá BF Boganum tók silfrið og lið 3 frá BF Boganum tók bronsið. Frekar sterkt trissuboga crew þar, enda margir þeirra sem hafa skilað Íslandi verðlaunum á alþjóðlegri grundu á EM og Evrópubikarmótum, sérstaklega ungmennin.

Íslandsmeistaratitill trissuboga meistaraflokki (Allir/óháð kyni): Þórdís tekur sigurinn á móti Ragnari gegn líkunum.

Um einstaklings Íslandsmeistaratitilinn í meistaraflokki (Allir/óháð kyni), sem væri hægt að kalla “the main event” þar sem að allir Íslendingar keppa, konur, karlar og allir, keppa um titilinn. Niðurstöðurnar voru mjög spennandi..

Þar mættust í gull úrslitum liðsfélagarnir Þórdís Unnur Bjarkadóttir 18 ára og Ragnar Smári Jónasson 20 ára, en áhugvert er að þau áttust einnig um titilinn í trissuboga U21 deginum áður (þar sem Ragnar tók sigurinn).

Þetta var aðeins í annað sinn í sögu íþróttarinnar þar sem keppendur í gull úrslitum trissuboga meistaraflokks (óháð kyni) voru báðir U21 og í fyrsta sinn í sögunni sem það gerist innandyra.

Ragnar átti frekar auðvelda vegferð úr 16 manna úrslitum upp í gull úrslitaleikinn (enda að skora hátt), Þórdís líka nema smá “hjúkett” í 8 manna úrslitum þar sem hún fékk góða mótstöðu og vann naumann sigur 145-143 á móti Degi Erni.

Gull úrslitaleikurinn milli Ragnars og Þórdísar var þó óvenjulegur og skorið hjá þeim báðum var óvenju lágt miðað við aðra leiki á ÍM. Greinilegt að einhver spenna gæti hafa lætt sér inn í hugann, þar sem að hvorugt þeirra hafði áður unnið Íslandsmeistaratitilinn í trissuboga (Allir/óháð kyni) og því mikið í húfi fyrir bæði.

Gull úrslitaleikurinn var samt sem áður mjög spennandi:
28-29 Þórdís byrjaði með 1 stigs forskot eftir fyrstu umferð
56-58 Jók svo forskotið um annað stig í annarri umferð 28-29
84-86 Þau jöfnuðu þriðju lotu 28-28
113-113 Ragnar náði svo að jafna leikinn í fjórðu umferð 29-27 og aðeins lokaumferðinn í úrslitaleiknum eftir
140-141 Þar náði Þórdís sigrinum með einu stigi 28-27

Þórdís tók því Íslandsmeistaratitil einstaklinga (óháð kyni/Allir) í fyrsta sinn á íþróttaferlinum. Yngsta manneskja í sögu íþróttarinnar sem hefur náð meistaraflokks titlinum óháð kyni (18 ára og 66 daga gömul).

Alfreð Birgisson 50 ára úr ÍFA Akureyri (sem vann titilinn 2025) vann bronsið á ÍM á móti Magnús Darra Markússyni 15 ára úr BFB Kópavogi 144-137

Samantekt af árangri Þórdísar á ÍM:

  • Íslandsmeistari kvenna meistaraflokkur
  • Íslandsmeistari félagsliða
  • Íslandsmeistari meistaraflokkur (allir/óháð kyni)
  • Íslandsmet BF Boginn félagsliða meistaraflokkur undankeppni 1731 stig metið var áður 1715 stig
    • Ragnar Smári Jónasson
    • Magnús Darri Markússon
    • Þórdís Unnur Bjarkadóttir
  • 1 stig frá metinu. þrisvar var Þórdís Unnur Bjarkadóttir 1 stigi frá metinu í útsláttarkeppni meistaraflokki kvenna með 145 stig en metið er 146 stig
  • 1 stigi frá metinu BF Boginn félagslið (Þórdís/Magnús/Ragnar) útsláttarkeppni 229 stig en metið er 230.
  • 2 stigum frá metinu Þórdís Unnur Bjarkadóttir U21 kvenna undankeppni 578 en metið er 580 stig

Mögulegt er að lesa nánar um ÍM á bogfimi.is

Íslandsmeistaramót trissuboga meistaraflokki, ungmenni skara framúr