Þórdís Unnur í 9 sæti á þátttökumesta ungmennamóti í sögu World Archery Europe

Þórdís Unnur Bjakadóttir úr BF Boganum í Kópavogi endaði í 5 sæti í liðakeppni, 9 sæti í blandaðri liðakeppni og 9 sæti í einstaklingskeppni á Evrópubikarmóti ungmenna – EBU (European Youth Cup) sem haldið var í Catez Slóveníu  27 júlí – 3 ágúst. Mótið var þátttökumesta ungmennamót í sögu World Archery Europe.

Einstaklingskeppni

Í undankeppni einstaklinga skoraði Þórdís 656 stig sem er hæsta skor sem Íslendingur hefur náð á European Youth Cup til dags í trisssuboga U18 kvenna.

Í 32 manna úrslitum lék Þórdís gegn Harriet Beckinsale-Smith frá Bretlandi. Thohrdees byrjaði köld en bætti sig í hverri umferð. Hún var 1 stigi yfir eftir fyrstu umferð 25-24, stelpurnar jöfnuðu umferð tvö og umferð þrjú 26-26 og 27-27. Í fjórðu umferð náði Þórdís að víkka bilið með 27-26 og staðan 105-103. Góð staða til að fara inn í síðustu umferð en langt frá öruggum sigri. En Þórdís skyldi engann vafa eftir og skaut 29 af 30 mögulegum, sem gerði þeirri Bresku ómögulegt að ná henni. Þórdís tók því sigurinn 134-130 sló því Bretann út og hélt áfram í 16 manna úrslit.

Í 16 manna úrslitum Evrópubikarmótsins mættust Thohrdees og Kseniia Gerasimova frá frá AIN (Authorised Neutral Athlete, frá þjóðum sem eru bannaðar vegna stríðs eða af öðrum ástæðum – AIN er Franska og stendur fyrir Athlètes Individuels Neutres). Þórdís átti einn af þessum furðulegu og villtu leikjum sem gerast af og til fyrir alla í 16 manna úrslitum þar sem að flestar örvarnar hennar enduðu í X (miðjan á 10 hringnum) eða 8, og lítið þar á milli. Þannig að Kseniia tók sigurinn 141-133, sló Þórdísi út og hún endaði því í 9 sæti á Evrópubikarmótinu í einstaklingskeppni.

Mixed Team (blönduð liðakeppni 1kk+1kvk)

Í trissuboga U18 blandaðri liðakeppni (mixed team) var Þórdís ásamt liðsfélaga sínum Magnúsi Darra, í 10 sæti í undankeppni EBU. Þau mættu því liði Belgíu í 16 liða úrslitum og leikurinn var nokkuð jafn.

Leikurinn byrjaði jafn 37-37 í fyrstu umferð og önnur umferð einnig jöfn 37-37. Ísland tók svo lakari síðari helming 38-34 og 38-32. Belgía tók því sigurinn 150-140 og sló Íslenska liðið út sem endaði í 9 sæti. Veðrið var mjög gott á mótinu og Íslenska liðið sló landsliðs Íslandsmetið í liðakeppni um 2 stig.

Þórdís og Magnús voru einnig lið Íslands á Evrópubikarmótinu í Búlgaríu í maí á þessu ári, þar sem þau tóku bronsið í liðakeppni eftir sigur gegn Portúgal 138-135 í bronsúrlitaleiknum í frekar vondu veðri. Þórdís vann einnig silfur í einstaklingskeppni þar, fyrsti Ísleendingurinn til að vinn til einstaklingsverðlauna í trissuboga á Evrópubikarmóti.

Liðakeppni (3kvk)

Í trissuboga U18 liðakeppni kvenna var Þórdís ásamt liðsfélögum sínum í Íslenska liðinu, í 5 sæti í undankeppni EBU með 1467 stig. Þær mættu því Króatíska liðinu í 8 liða úrslitum. Þar sem Króatía sló Ísland út 219-199 og Ísland endaði í 5 sæti í lokaniðurstöðum mótsins í liðakeppni.

Um mótið

Mótið sjálft var án vafa sögulegur viðburður í stærð og fjölda þátttakenda og ekki langt frá því að segja að mótið hafi verið á HM leveli, enda nokkrar þjóðir utan Evrópu sem kepptu á mótinu líka.

  • 317 keppendur á Evrópubikarmóti 2017 í Króatíu var áður stærsta ungmennamót  í sögu íþróttarinnar í Evrópu
  • 363 keppendur á EM ungmenna 2024 í Rúmeníu var áður stærsta ungmennamót í sögu íþróttarinnar í Evrópu
  • Stærsta HM í sögu íþróttarinnar 584 og mótið nær því ekki að vera stærra en stærsta HM. En var sambærilegt í fjölda þátttakenda og 2 HM á síðustu 20 árum.
  • 393 keppendur voru skráðir á Evrópubikarmótið í Slóveníu núna. Sem er því bæði stærra en öll Evrópubikarmót ungmenna sem haldin hafa verið og stærra en öll EM ungmenna sem haldin hafa verið hingað til. Sem gerir það að stærsta heimsálfu ungmennamóti í sögu íþróttarinnar.

Í heildina með þjálfurum/liðsstjórum voru yfir 500 þátttakendur á EBU í Slóveníu og slær einnig metið í heildarfjölda þátttakenda.

Samantekt af árangri:

  • 9 sæti – Þórdís Unnur Bjarkadóttir BFB – Trissuboga kvenna U18
  • 9 sæti – Trissuboga U18 blandað lið (mixed team)
    • Þórdís Unnur Bjarkadóttir BFB
    • Magnús Darri Markússon BFB
  • 5 sæti – Trissuboga kvenna U18 lið
    • Sóldís Inga Gunnarsdóttir BFB
    • Þórdís Unnur Bjarkadóttir BFB
    • Elísabet Fjóla Björnsdóttir BFB
  • Landsliðs Íslandsmet –  Trissubogi U18 blandað lið útsláttarkeppni – 140 stig (metið var áður 138)
    • Þórdís Unnur Bjarkadóttir
    • Magnús Darri Markússon
  • Þórdís bætti hæsta skor í trissuboga U18 á EBU 656

Þórdís hefur því lokið keppni á Evrópubikarmótinu. En mögulegt verður að lesa nánar um mótið eftir að því lýkur að fullu á vefsíðu Bogfimisambands Íslands hér:

Home