
Þórdís Unnur Bjarkadóttir endaði í 4 sæti í liðakeppni og 17 sæti í einstaklingskeppni á Evrópubikarmóti – EB (European Grand Prix – EGP) í meistaraflokki í Amsterdam Niðurlöndum 21-26 júlí.
Þórdís sló U18 Íslandsmetið með 666 stig (metið var 663) og setti hæsta skor sem trissuboga kona hefur náð á Evrópubikarmóti í meistaraflokki til dags (var áður 642 stig) og jafnaði hæsta sæti í undankeppni sem Íslendingur hefur náð á EB (14 sæti).
Í fyrsta útsláttarleik Evrópubikarmótsins enduðu á móti hver annarri tvær Íslenskar stelpur Þórdís og Eowyn. Óheppilegt þar sem að aðeins ein gat unnið og haldið áfram.
Eowyn byrjaði 1 stigi yfir eftir fyrstu umferð, en Þórdís snéri því við í umferð 2 í 1 stigs forystu sem hún hélt alveg þar til í síðustu umferðinni þar sem Eowyn tók fullkomna umferð 10-10-10 og snéri leiknum við í að vera 1 stigi á eftir í að sigra með 2 stigum. Eowyn því sigurinn og sló Þórdísi út 140-138 og hélt því áfram í 16 manna úrslit. Þórdís endaði því í 17 sæti í einstaklingskeppni.
Í liðakeppni voru Þórdís ásamt liðsfélögum sínum í Íslenska liðinu, Önnu og Eowyn, í 4 sæti í undankeppni EB. Stelpurnar töpuðu í undanúrslitum gegn Þýskalandi 230-215 og kepptu því við heimamenn Holland á heimavelli um bronsið. Þar tóku heimamenn sigurinn 228-213 og bronsið Stelpurnar okkar enduðu því í 4 sæti á Evrópubikarmótinu.
Mögulegt er að lesa nánar í frétt Bogfimisambands Íslands hér:
Besti árangur Íslands í nokkrum greinum á Evrópubikarmótinu í Amsterdam