Þórdís Unnur Evrópumeistari berboga, brons í trissuboga, Íslandsmet í meistaraflokki o.fl. á EM

Þórdís Unnur Bjarkadóttir úr BF Boganum í Kópavogi var að keppa á Evrópumeistaramóti U21 í bogfimi innandyra í síðustu viku í Plovdiv Búlgaríu. Þórdís keppti í trissuboga og berboga á EM U21.

Í einstaklingskeppni trissuboga U21 kvenna var Þórdís með glæsilegt skor 580 stig, sem er nýtt Íslandsmet í bæði meistaraflokki og U21 flokki. Þórdís endaði í 7 sæti í undankeppni EM meðal þeirra bestu í Evrópu.

Í 32 manna útsláttarleikjum einstaklinga á EM (lokakeppni) trissuboga mættust Þórdís og Slaveya Sankova frá Búlgaríu sem var í 26 sæti í undankeppni EM. Það var ekki mikil samkeppni fyrir Þórdísi sem vann leikinn örugglega 143-130 og hún hélt því í 16 manna úrslit. Samt fínar vinkonur stelpurnar.

Í 16 manna úrslitum mættust Þórdís og Livia Haals Wieth-Knudsen frá Danmörku sem var í 10 sæti undankeppni EM. Þórdís var hærri í undankeppni EM (7 sæti) en skor munurinn milli keppenda þegar komið er á hæsta stig íþróttarinnar (topp 8-16 ish) er það lítill að það er nánast hlutkesti hver mun vinna hvaða leik (578 vs 580 á 60 örvum). Hér var lukkan Danmerkur megin og sú Danska tók sigurinn 146-140 og sló Þórdísi út af EM sem endaði í 9 sæti trissuboga U21 kvenna einstaklingskeppni.

Í liðakeppni trissuboga kvenna U21 endaði Íslenska liðið (Þórdís, Sóldís og Eydís, eða “dísirnar”) í 5 sæti í undankeppni EM. Efstu 16 lið halda áfram í lokakeppni EM (útsláttarleiki).

Stelpurnar okkar mættu Danmörku í 8 liða úrslitum í æsispennandi leik. Þar komu okkar stelpur inn með sterka frammistöðu og slógu landsliðsmetið í útsláttarleik trissuboga U21 kvenna og jöfnuðu landsliðsmetið í útsláttarleik trissuboga meistaraflokks kvenna með 227 stig. Þó að Danirnir væru taldir sterkari þjóðin miðað við skor úr undankeppni og Ísland væri underdog leiksins þá höfðu Danir engin svör við því og Ísland tók öruggann sigur 227-224 og hélt áfram í undanúrslit EM.

Í undanúrslitum EM mættu stelpurnar okkar liði Rús…. uuu Individual Neutral Athletes (AIN) 😅.  Þar spiluðu okkar stelpur fínann leik en þær Rús… hehem hlutlausu reyndust sterkari og tóku sigurinn 230-223. Okkar stelpur fóru því í brons úrslitaleikinn. (AIN eru íþróttamenn frá löndum sem er bannað að keppa undir eigin fána á íþróttaviðburðum. Um mitt ár 2025 ákvað IOC að leyfa íþróttamönnum í ungmenna flokkum að keppa einnig í liðakeppni til að refsa ekki óþarflega yngri kynslóð sem hefur lítið val eða áhrif á aðstæður í heiminum og ástæður þess að land þeirra er bannað úr íþróttaviðburðum. Þess vegna er þetta furðulega ástand að “Individual” Neutral Athletes eru að keppa í Team competition)

Stelpurnar okkar mættu svo erkifjendum Ítalíu í brons úrslitaleik trissuboga U21 kvenna. En Ítalía hefur slegið Ísland út af EM í 8 liða úrslitum síðustu 3 EM í röð, og nánast verið “gate-keeperinn” á því að Ísland keppi um verðlaun í greininni. Því miður var leiknum ekki streymt beint þar sem að þátttaka á EM á þessu ári var það mikil og með viðbót blandaðrar liðakeppni (mixed team) var ekki nægur tími í skipulaginu til þess að geta einnig streymt brons leikjum í liðakeppnum á EM. Leikurinn var hryllilega spennandi og stelpurnar skiptust á forskotinu.

Ísland byrjaði 2 stigum yfir 57-55 í fyrstu umferð, og stelpurnar jöfnuðu umferð 2 56-56 og Ísland hélt því 2 stiga forskotinu eftir umferð 2 113-111. Ítalía náði að snúa leiknum við í 1 stigs forystu 169-168 í þriðju umferð með 58-55 umferð. Í síðustu umferð leiksins náðu stelpurnar okkar svo glæsilegri umferð 58-57 og jöfnuðu leikinn 226-226 og knúðu fram bráðabana um það hvort liðið myndi hreppa bronsið á EM. Í bráðabananum byrjuðu bæði liðin á 10-9 og allt kom því niður á síðustu ör bráðabananns þar sem Ísland (Þórdís sem skaut síðustu örinni) þrumaði í 10 og þær Ítölsku í 9 og Ísland tók því sigurinn og bronsið í bráðabana 29-28 og þar með fyrstu verðlaun Íslands í trissuboga kvenna U21 í sögu íþróttarinnar.

Sérstaklega vel gert hjá okkar stelpum. Danmörk, Ítalía og “AIN” eru allt lið sem eru að meðaltali “sterkari” en stelpurnar okkar í undankeppni EM, en þó ekki með gífurlega miklum mun. Ekki svo sterka að þau myndu vinna hlutfallslega alla leiki. Dagsformið hjá okkar stelpum var bara betra að þessu sinni og þar sem allar okkar stelpur eru ungar (16, 17 og 18 ára) og eiga langann feril eftir í U21 flokki er líklegt að þær muni mæta enn sterkari til leiks á næsta EM og því ekki ólíklegt að við sjáum fleiri verðlaun frá þeim í framtíðinni í þessum flokki. Kannski jafnvel Evrópumeistaratitil?

Í blandaðri liðakeppni (mixed team) trissuboga U21 var Íslenska liðið (Þórdís og Ragnar) í 4 sæti í undankeppni EM. Þau sátu því hjá í 16 liða úrslitum EM og héldu beint í 8 liða úrslit.

Þar mætti lið Íslands liði Króatíu sem var í 5 sæti í undankeppni EM. Nánast enginn munur var á skorum liðana í undankeppni og því ljóst að það yrði harður bardagi um hvort liðið kæmist í undanúrslit EM. Bæði lið byrjuðu sterk með 40-39 umferð sem gaf Króatíu eins stigs forskot. Liðin jöfnuðu umferð 2. Króatía náði svo 2 stigum í viðbót í umferð þrjú, en Ísland náði að minnka muninn í síðustu umferð um 1 stig, en það var ekki nóg leiknum var lokið með 154-152 sigri Króatíu. Liðin eru það jöfn að það er nánast hlutkesti hvort liðið vinnur leik hverju sinni og að þessu sinni var það Króatía sem varð uppi. Súrt þar sem að efstu liðin eru það jöfn að Ísland hefði á réttum degi getað unnið Evrópumeistaratitilinn í þessari grein. En svona er það upp og niður eftir dagsforminu. Ísland endaði því í 8 sæti trissuboga U21 mixed team á EM.

Í einstaklingskeppni (útsláttarleikjum) berboga kvenna U21 mættust Þórdís og Denitsa Dimitrova frá Búlgaríu. Þar tók sú Búlgarska öruggann sigur 6-0 og sló Þórdísi út af EM í berboga U21 kvenna einstaklinga þar sem hún endaði í 9 sæti á EM.

Í liðakeppni berboga kvenna U21 vann Íslenska liðið (Lóa, Anna Yu og Þórdís) Evrópumeistaratitilinn í liðakeppni og eru “official” Evrópumeistarar. En stelpurnar áttu að mæta Búlgaríu í gull úrslitaleiknum, en Búlgaría þurfti að draga sig úr leik vegna ófyrirsjáanlegra aðstæðna og Ísland tók því titilinn.

Samantekt af árangri á EM:

  • Niðurstöður Trissuboga:
    • Trissuboga undankeppni einstaklinga U21 EM 7 sæti
    • Trissuboga lokakeppni einstaklinga U21 EM 9 sæti
    • Trissuboga liðakeppni kvenna U21 Brons (3 sæti)
      • Sóldís Inga Gunnarsdóttir
      • Þórdís Unnur Bjarkadóttir
      • Eydís Elide Sartori
    • Trissuboga blönduð liðakeppni U21 (mixed team) 9 sæti
      • Þórdís Unnur Bjarkadóttir
      • Ragnar Smári Jónasson
  • Niðurstöður Berboga:
    • Berboga undankeppni einstaklinga U21 EM 9 sæti
    • Berboga lokakeppni einstaklinga U21 EM 9 sæti
    • Liðakeppni Evrópumeistarar (Gull, 1 sæti)
      • Lóa Margrét Hauksdóttir
      • Þórdís Unnur Bjarkadóttir
      • Anna Guðrún Yu Þórbergsdóttir
  • Íslandsmet
    • Þórdís Unnur Bjarkadóttir Trissubogi kvenna meistaraflokkur 580 stig, metið var 576 og er 8 ára gamalt
    • Þórdis Unnur Bjarkadóttir Trissubogi kvenna U21 undankeppni 580 stig, metið var áður 575 stig
    • Trissubogi mixed team U21 undankeppni landsliðsmet 1164 stig
      • Þórdís Unnur Bjarkadóttir
      • Ragnar Smári Jónasson
    • Trissubogi mixed team U21 útsláttur landsliðsmet 152 stig
      • Þórdís Unnur Bjarkadóttir
      • Ragnar Smári Jónasson
    • Trissuboga kvenna U21 útsláttarleikur landsliðsmet 227 stig, en metið var áður 222 stig (slógu metið þrisvar á EM 2026)
      • Sóldís Inga Gunnarsdóttir
      • Þórdís Unnur Bjarkadóttir
      • Eydís Elide Sartori
    • Nálægt metinu: Trissuboga kvenna meistaraflokkur útsláttarleikur 227 stig, sem jafnar núverandi kvenna metið 227 stig Sóldís/Eydís/Þórdís (Þær jöfnuðu líka karla m.fl. metið, U21 kvenna liðið okkar er sterkt enda tóku þær brons á EM 😉)
  • Besti árangur í einstaklingskeppni í sögu íþróttarinnar á EM innandyra:
    • Þórdís Unnur Bjarkadóttir: Trissubogi U21 kvenna einstaklinga: Hæsta skor í undankeppni EM 580 stig, var áður best 572 stig frá EM 2022
    • Þórdís Unnur Bjarkadóttir: Trissubogi U21 kvenna einstaklinga: Hæsta sæti í undankeppni EM 7 sæti, var áður best 12 sæti á EM 2024

Mögulegt er að finna nánari fréttir um Ísland á EM innandyra í frétt Bogfimisambands Íslands hér:

Ísland í meðal top 5 þjóða í Evrópu