Þórdís Unnur Bjarkadóttir 2 silfur á NM, 6 sæti í Evrópu, 3 Íslandsmeistaratitlar og 3 Íslandsmet á 2 vikum

Þórdís Unnur Bjarkadóttir í Bogfimifélaginu Boganum í Kópavogi keppti á ÍM ungmenna utandyra í Hafnarfirði 28 júni, NM ungmenna utandyra (NUM) í Óðinsvé Danmörku 3-7 júlí og Evrópumeistaramóti ungmenna 8-14 júlí í Búkarest Rúmeníu. Non stop keppni og náði mjög góðum árangri.

ÍMU

Á Íslandsmóti ungmenna varð Þórdís Íslandsmeistari í félagsliðakeppni og í einstaklingskeppni í bæði trissuboga kvenna U18 flokki og trissuboga U18 óháð kyni. Til viðbótar við 3 Íslandsmeistaratitla sló Þórdís einnig 3 Íslandsmet í trissuboga U18 flokki. Félagsliðakeppni, kvenna undankeppni og kvenna útsláttarkeppni.

NUM

Á NM ungmenna var Þórdís næst efst í undankeppni með mjög littlum mun. Þórdís var því talin sigurstrangleg til þess að taka Norðurlandameistaratitil einstaklingskeppni í sínum flokki.

Í NUM einstaklingskeppni sigraði Þórdís auðveldlega Emilie Flateby frá Noregi í 8 manna úrslitum 127-59 og hélt því áfram í undanúrslit. Þórdís mætti svo Sara Sjödahl frá Finnlandi í undanúrslitum og vann aftur örugglega 135-126 og Þórdís því komin í gull úrslitaleikinn. Þórdís mætti í gull úrslitaleiknum Caroline Frederikke Lunde-Jørgensen frá Danmörku en þar hafði sú Danska betur 133-128 og Þórdís tók því silfrið á NUM í einstaklingskeppni (aftur).

Í liðakeppni á NUM sat lið Þórdísar hjá í fyrstu leikjum og fóru beint í undanúrslit. Í undanúrslitum mættu Þórdís og liðsfélagar hennar Norðurlandaliði 2 og unnu örugglega 198-190 og lið Þórdísar hélt því áfram í gull úrslitin. Í gull úrslitaleiknum mætti lið Þórdísar Danmörku, en þar unnu Danir 213-201. Þórdís tók því annað silfrið sitt ásamt liðsfélögum sínum í liðakeppni á NM ungmenna.

EMU

Á EM ungmenna einstaklingskeppni var Þórdís í 11 sæti í undankeppni mótsins í trissuboga kvenna U21 og sat því hjá í fyrsta útslætti á EM. Þórdís lenti á móti Lucia Kocutova frá Slóvakíu í 32 manna úrslitum. Þórdís var talin mun líklegri til sigurs, en leikurinn var mjög skrítinn. Báðar stelpurnar skutu á rangt skotmark í þriðju umferðinni og utan þess var sú Slóvakíska að skjóta óvenjulega hátt skor á sama tíma og Þórdís var að skjóta nokkuð nálægt sínu meðaltali. En leikurinn endaði í því að Slóvakíska vann 128-125 og Þórdís endaði því í 17 sæti í einstaklingskeppni á EM (og þetta er líklega fyrsti og síðasti leikurinn þar sem við munum sjá báða keppendur skjóta á rangt skotmark á sama tíma…)

Í liðakeppni á EM ungmenna stóðu Þórdís og liðsfélagar hennar Freyja og Eowyn sig vel og voru í 7 sæti eftir undankeppni mótsins og sátu því hjá þar til í 8 liða úrslitum. Þar mættu þær Franska liðinu sem slógu Ísland út af EM 228-216 og Þórdís endaði því i 6 sæti ásamt liðsfélögum sínum í liðakeppni á EM. Stelpurnar okkar voru ekki að skjóta illa, Frakkarnir áttu bara tvær mjög góðar umferðir sem var meirihlutinn af stiga muninum í leiknum.

Í blandaðri liðakeppni á EMU (hæsti kk og kvk í undankeppni frá hverju landi) stóðu Þórdís og liðsfélagi hennar Ragnar sig vel og enduðu í 15 sæti í undankeppni sem þýddi að þau sátu hjá í fyrsta útslætti. Í 16 liða úrslitum mættu þau svo sterku liði Tyrklands þar sem Tyrkir tóku sigurinn 152-138 og Ragnar endaði því í 9 sæti þar. Ragnar og Þórdís voru ekki að skjóta sitt besta í leiknum, þó að þau hafi skorað hærra en mörg löng og jafnað Þýskaland í skori í leiknum, þá vitum við að þau skjóta venjulega betur. En Tyrkir skutu líka sitt besta skor á EMU í leiknum gegn Íslandi.

Evrópubikarmótaröð ungmenna 2024

Evrópubikarmót ungmenna er samanlögð frammistaða í undankeppni á utandyra ungmenna mótum Evrópusambandsins á hverju ári. Þórdís stóð sig frábærlega í undankeppni á bæði Evrópubikarmótinu í Búlgaríu í maí og á EM ungmenna í Rúmeníu í júlí og Þórdís endaði í 8 sæti í Evrópubikarmótaröðinni 2024. Hvorki alþjóðabogfimisambandið né Evrópskabogfimisambandið eru með heimslista eða Evrópulista fyrir ungmenna flokka utandyra og því er Evrópubikarmót ungmenna það næsta sem kemst að “Evrópulista” í bogfimi fyrir U18 og U21 flokk. Því nokkuð flott að enda í topp 10 á “Evrópulista”.

Samantekt af niðurstöðum Þórdísar á ÍMU, NUM, EMU og EBMU:

  • Silfur trissuboga kvenna U18 einstaklingskeppni á NUM
  • Silfur trissuboga U18 liðakeppni á NUM
  • Íslandsmeistari trissuboga U18 kvenna á ÍMU
  • Íslandsmeistari trissuboga U18 Unisex á ÍMU
  • Íslandsmeistari trissuboga U18 félagsliðakeppni ÍMU
  • 17 sæti trissuboga kvenna U21 einstaklinga á EMU
  • 6 sæti trissuboga kvenna U21 liðakeppni á EMU
  • 9 sæti trissuboga mixed team U21 á EMU
  • 8 sæti trissuboga kvenna U21 einstaklinga í Evrópubikarmótaröð ungmenna
  • Íslandsmet Trissubogi U18 kvenna – 630 stig undankeppni, Metið var áður 555.
  • Íslandsmet Trissubogi U18 kvenna – 139 stig útsláttarkeppni. Metið var áður 116 stig.
  • Íslandsmet Trissuboga U18 félagslið undankeppni – 1129 stig (nýtt met)

Frekari upplýsingar um mótin er hægt að finna í fréttum Bogfimisambands Ísland hér:

Ísland í 6 sæti á EM ungmenna í hitabylgju í Rúmeníu

Frábært gengi Íslands á NM ungmenna í bogfimi um helgina með 5 Norðurlandameistara, 5 Norðurlandamet o.fl.

Kópavogur og Hafnarfjörður sýndu yfirburði á ÍMU í bogfimi utandyra og tóku 27 titla og 7 Íslandsmet