
Stella Wedholm Albertsdóttir í Bogfimifélaginu Boganum í Kópavogi vann gull í liðakeppni og brons í einstaklingskeppni á Norðurlandameistaramóti ungmenna (NUM) sem haldið var 3-6 júlí í Boras Svíþjóð.
Stella mætti Þórunn Erla Harðardóttir í brons úrslitum í einstaklingskeppni sveigboga kvenna Open U21 á NUM. Þar sem að Stella tók sigurinn 6-2 og Stella tók því bronsið í einstaklingskeppni á NM ungmenna 2025.
Í gull úrslita leik liðakeppni mætti Stella, ásamt Þórunn Erla Harðardóttir og Pal Greger Hansen Bryhn í sameinuðu Norðurlandaliði, liði Íslands. Þar tóku Stella og liðsfélagar öruggann sigur 6-0 og Norðurlandameistaratitilinn í sveigboga open U21 liðakeppni.
Niðurstöður af NM ungmenna 2025:
- Stella Wedholm Albertsdóttir – Brons (3 sæti) – sveigboga U21 Open kvenna – BFB
- Stella Wedholm Albertsdóttir – 1 sæti – Sveigboga U21 Open lið (Nordic Team)
Frekari upplýsingar er mögulegt að finna í frétt Bogfimisambands Íslands hér fyrir neðan
Íslendingar á NM ungmenna taka heim 4 gull, 9 silfur og 6 brons