
Sölvi Óskarsson endaði í 7 sæti berboga karla liðakeppni og 17 sæti í einstaklingskeppni í meistaraflokki á Evrópumeistaramótinu innandyra 2025 í Samsun Tyrklandi 17-23 febrúar. Þetta var annað EM Sölva.
Sölvi stóð sig mjög vel í undankeppni mótsins og var oft meðal topp 10 á meðan á undankeppni stóð og lengst yfir liðsfélögum sínum sem voru taldir líklegri til að verða hærri á lista. En skorið hans féll í síðasta fjórðungi og hann endaði í 22 sæti undankeppni EM með 482 stig, sem er samt hans personal best.
Sölvi mætti í 32 manna úrslitum Alexandru Koteles frá Rúmaníu þar sem að sá Rúmenski tók sigurinn. Sölvi endaði því í 17 sæti í einstaklingskeppni EM. En miðað við skorin á Sölvi alveg séns á því að komast í 16 manna úrslit eða lengra á réttum degi.
Í liðakeppni berboga voru strákarnir okkar (Sölvi, Izaar og Gummi) slegnir út í 8 manna úrslitum EM af Ítalíu. Leikurinn endaði 6-0 og strákarnir okkar enduðu í 7 sæti á EM.
Ítalía er lang sterkast þjóð í berboga karla meistaraflokki og óheppni að lenda á móti þeim í 8 liða úrslitum. Okkar strákar hefðu átt góðann séns á því að komast í brons eða gull úrslitaleikinn ef það hefði ekki raðast þannig. Strákarnir okkar kepptu einmitt um bronsið á síðasta EM 2024, þar sem að þeir töpuðu brons leiknum í jafntefli og bráðabana við Serbíu sem margir muna eftir.
Niðurstöður Sölva á EM í meistaraflokki einstaklings og liðakeppni:
- Sölvi Óskarsson – 17 sæti berboga karla (sleginn út af Rúmena í 32 manna úrslitum)
- Berboga karla lið meistaraflokkur – 7 sæti (slegnir út af Ítalíu í 8 manna úrslitum)
Nánari upplýsingar um EM 2025 er hægt að finna í frétt Bogfimisambands Íslands hér: