Sölvi í 7 sæti EM

Sölvi Óskarsson úr BF Boganum í Kópavogi var að keppa á Evrópumeistaramóti í bogfimi innandyra í vikunni í Plovdiv Búlgaríu.

Í einstaklingskeppni berboga karla var Sölvi ekki að skjóta upp á sitt best, fyrri umferðin var allt í lagi en seinni var frekar lök. En það dugði Sölva samt í 28 sæti í undankeppni EM með 385 stig og aðeins 32 efstu einstaklingar vinna þátttökurétt í útsláttarkeppni EM.

Sölvi mætti því 32 manna lokakeppni EM Vincent Houdart frá Frakklandi sem var í 5 sæti í undankeppni EM. Frakkinn átti mjög góðann leik og gaf lítið færi á sér nema í síðustu umferðinni en þar gerði Sölvi úps og Frakkinn tók sigurinn 6-0. Sölvi var því slegin út af EM og endaði í 17 sæti.

Í liðakeppni berboga karla endaði Íslenska liðið (Helgi, Izaar og Sölvi) í 7 sæti í undankeppni EM. Efstu 16 lið halda áfram í lokakeppni EM (útsláttarleiki).

Strákarnir voru á endanum slegnir út af EM í 8 liða úrslitum gegn almennt sterkasta liði í heiminum, Ítalíu. Ítalía tók sigurinn örugglega 6-0 og Ísland endaði í 7 sæti á EM. Ísland getur átt umferðir þar sem við getum náð stigum af Ítölunum, og jafnvel með mikilli heppni unnið þá, en ekki að staðaldri og það kom ekki upp í þessu móti.

Sölvi hefur lokið keppni á EM innandyra að þessu sinni er gull og brons úrslitaleikir EM verða haldnir 20-21 febrúar næstkomandi. Nokkrir Íslendingar eru að keppa til verðlauna í sínum keppnigreinum á EM, en fjallað verður nánar um það og EM almennt í öðrum fréttum á archery.is og bogfimi.is.