Sóldís Inga með silfur á Evrópubikarmóti ungmenna og 2 landsliðsmet

Sóldís Inga Gunnarsdóttir vann silfur á Evrópubikarmóti ungmenna (EBU) í trissuboga U18 liðakeppni með landsliðinu og endaði í 9 sæti í einstaklingskeppni EBU.

Sóldís og liðsfélagar hennar á Evrópubikarmótinu, Elísabet Fjóla Björnsdóttir og Þórdís Unnur Bjarkadóttir, léku við Ítalska liðið í gull úrslitaleik trissuboga U18 kvenna liða. Veðrið í leiknum var frekar ömurlegt, mikil rigning, vindur og frekar kalt, allir keppendur úr öllum löndum voru að ströggla í liðakeppni að ná að halda frammistöðunni upp.

Leikurinn við Ítalíu var mjög jafn, í annarri lotu gerði einn liðsmaðurinn mistök og skaut ör á vitlausa skotskífu, sem orsakaði það að Íslands tapaði hæstu ör í þeirri lotu (10 stigum). Ef það hefði ekki gerst þá hefðu liðin verið jöfn í 3 lotu leiksins. En okkar stelpur áttu svo eitt úps skot og skutu framhjá skotmarkinu í síðustu lotunni. Ef þessar tvær örvar hefðu verið gildar/góðar þá hefði lítill munur verið milli liðina í skori.

En Ítalska liðið hafði betur 203 á móti 181 og Ísland tók því silfrið á Evrópubikarmótinu. Í fyrsta sinn í trissuboga U18 kvenna.

Vert er að geta að þetta eru fyrstu verðlaun sem Ísland hefur unnið til í liðakeppni í U18 flokki og einnig fyrstu verðlaun sem Sóldís hefur unnið til á stórmótum ungmenna, en hún vann silfur á NM ungmenna 2024.

Sóldís setti einnig tvö landsliðsmet í trissuboga U18 liðakeppni kvenna (hæsta skor sem landslið hefur náð). Bæði í undankeppni trissuboga U18 kvenna liðakeppni með 1670 stig og í útsláttarleik trissuboga U18 kvenna liðakeppni með 181 stig.

Sóldís endaði í 10 sæti í undankeppni einstaklinga á Evrópubikarmótinu með 554 stig, sem er einnig hennar personal best í alþjóðlegri keppni (enda hennar fyrsta alþjóðlega stórmót á 50 metra færi í U18 flokki) og vann því þátttökurétt í útsláttarkeppni mótsins. En hún er staðföst í því að hún ætlar að slá það personal best í undankeppni á næsta Evrópubikarmóti í Slóveníu í júlí.

Í útsláttarleikjum einstaklinga var Sóldís slegin út í 16 manna úrslitum Evrópubikarmótsins og endaði því í 9 sæti í loka niðurstöðum. Sóldís var slegin út af mótinu af Ginevra Lencioni frá Ítalíu 130 vs 124.

Evrópubikarmótaröð ungmenna samanstendur af tveim mótum á hverju ári og seinna mótið er í Catez í Slóveníu um júlí/ágúst mánaðarmótin, þar sem Sóldís mun einnig keppa. Þar er einnig úrslitamót Evrópubikarmótaraðarinnar, sem byggist á samanlögðum skorum í undankeppni beggja móta.

Ferðin til Búlgaríu var fjörug og byrjaði á því að flug hópsins frá Keflavík til Vínarborgar um miðnætti 9-10 maí var aflýst. Ástæðan var að flugmennirnir gátu ekki lent í Keflavík út af vindi. Eftir tvær lendingar tilraunir í KEF þurftu þeir að diverta til Egilstaða vara flugvallar þeirra.

Flugin voru endurbókuð fljótt og Íslenski hópurinn settur á Hotel Cabin í Borgartúni til þess að gista nóttina. Semsagt meirihluti hópsins var lengra frá Búlgaríu eftir fyrstu 12 tíma ferðalagsins en þeir voru áður en þeir lögðu af stað upprunalega að heiman, eins skondið og það er. Mögulegt var að koma hópnum í 10:30 flug frá Icelandair út til Amsterdam, þaðan til Vínarborgar og þaðan til Búlgaríu. Smá ping-pong um flugvelli í Evrópu til þess að komast til Búlgaríu í tæka tíð fyrir mótið, en það heppnaðist.

Fyrir þá sem þekkja ekki almennt til hvernig keppni í bogfimi virkar þá er það sambærilegt og í flestum íþróttum, en hér er stutt lýsing:

  • Mót byrja á undankeppni þar sem skotið er XX örvum.
    (XX af því að fjöldi örva sem skotið er í undankeppni er mismunandi eftir íþróttagreinum)
  • XX efstu einstaklingar (og lið) í skori í undankeppni mótsins vinna þátttökurétt á mótinu og halda áfram í útsláttarkeppni.
    (XX af því að fjöldinn sem vinnur þátttökurétt er mismunandi eftir hvort það er einstaklingur eða lið og er breytilegt eftir mótum og íþróttagreinum)
  • Í útsláttarkeppni er keppendum (eða liðum) raðað upp eftir lokasæti þeirra úr undankeppni (single elimination tournament)
  • Maður á móti manni (eða lið á móti liði). Sá sem vinnur leikinn heldur áfram, sá sem tapar er sleginn út af mótinu, leik eftir leik eftir leik þar til einn sigurvegari stendur eftir.

Þetta var annað stórmót ungmenna Sóldísar, en hún keppti einnig á EM innandyra í febrúar þar sem hún setti heimsmet og Evrópumet ásamt liðsfélögum sínum í trissuboga U18 útsláttarleik liða. Hún er einnig áætluð til keppni á Norðurlandameistararmót ungmenna í byrjun júlí og á seinna Evrópubikarmót ungmenna í Slóveníu í byrjun ágúst, sem er einnig lokamótið í Evrópubikarmótaröð ungmenna 2025.

Samantekt loka árangurs Sóldísar á Evrópubikarmóti ungmenna í Búlgaríu:

  • Sóldís Inga Gunnarsdóttir – 9 sæti – Trissuboga U18 kvenna
  • Compound U18 women team – Silfur
    • Þórdís Unnur Bjarkadóttir
    • Sóldís Inga Gunnarsdóttir
    • Elísabet Fjóla Björnsdóttir
  • Landsliðsmet í trissuboga U18 kvenna lið undankeppni – 1670 stig
    • Þórdís Unnur Bjarkadóttir
    • Sóldís Inga Gunnarsdóttir
    • Elísabet Fjóla Björnsdóttir
  • Landsliðsmet í trissuboga U18 kvenna lið útsláttarleik –  181 stig
    • Þórdís Unnur Bjarkadóttir
    • Sóldís Inga Gunnarsdóttir
    • Elísabet Fjóla Björnsdóttir

Sóldís lauk keppni á Evrópubikarmótinu í dag í úrslitaleik liða á móti Ítalíu, en Evrópubikarmótið er viku löng keppni og Íslenski hópurinn fór á flugvöllinn 9 maí og kemur heim 18 maí.

Nánari upplýsingar um Evrópubikarmótið og gengi Íslands almennt á því verður hægt að finna í frétt Bogfimisambands Íslands sem birtist á bogfimi.is eftir að einstaklings úrslitaleikjum lýkur á morgun, En þar á Ísland 3 keppendur sem eru að leika um gull í einstaklingskeppni og mögulegt að fylgjast með því á Youtube rás Evrópusambandsins https://www.youtube.com/@worldarcheryeurope/streams